Brons í 2. deild B á HM karla í íshokkí
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí, með fjölmarga Akureyringa innanborðs, hafnaði í 3. sæti 2. deildar B á Heimsmeistaramótinu. Liðið lauk keppni í Búlgaríu í morgun.
Eftir þrjá sigra í fyrstu þremur leikjunum, eins og fram kom í frétt akureyri.net í gær, mættu Íslendingar liði Búlgara í fjórða leiknum í gærmorgun. Búlgarir voru þá án sigurs í fyrstu þremur leikjunum, en íslenska liðið náði sér ekki á strik og höfðu Búlgarir betur, 3-1. Alex Máni Sveinsson skoraði eina mark Íslands. Helgi Ivarsson varði 22 af 24 skotum, eða 91,67%.
Lokaleikur íslenska liðsins var síðan í dag og hefði liðið geta tryggt sér gullið með sigri, en það gekk ekki eftir, 2-5 tap. Unnar Hafberg Rúnarsson skoraði annað af mörkum Íslands. SA-leikmennirnir Bjarmi Kristjánsson, Heiðar Gauti Jóhannsson og Jóhann Már Leifsson áttu allir stoðsendingar í dag, eins og Akureyringurinn Ólafur Baldvin Björgvinsson, sem spilar erlendis. Helgi Ivarsson, sem einnig spilar erlendis, varði 23 af 27 skotum, eða 85,19%.
Unnar Hafberg Rúnarsson var markahæstur leikmanna SA í mótinu, skoraði fimm mörk, þar af þrennu í fyrsta leiknum. Jóhann Már Leifsson átti sjö stoðsendingar í mörkum Íslands.
Nokkrir punktar um leikmenn SA úr tölfræði mótsins
- Stig (mörk+stoðsendingar)
Jóhann Már Leifsson í 14. sæti með sjö stig, allt stoðsendingar. - Skoruð mörk
Unnar Hafberg Rúnarsson í 5. sæti með fimm mörk. - Stoðsendingar
Jóhann Már Leifsson í 2. sæti með sjö stoðsendingar - Dómarakast (Face-off)
Heiðar Gauti Jóhannsson í 3. sæti með 38 unnin af 62 (61,29%)
Jóhann Már Leifsson í 4. sæti með 44 unnin af 74 (59,46%)
Birki og beit
Hús dagsins: Hafnarstræti 35
Þegar lífið hægir á manni
Höfðingsskapur á Hofi