Fara í efni
Pistlar

Íshokkílandsliðið á toppi 2. deildar B á HM

Unnar Hafberg Rúnarsson og Jóhann Már Leifsson fagna einu marka Unnars í fyrsta leiknum. Mynd: ishokki.is.

Íshokkílandslið karla er í góðri stöðu á toppi 2. deildar B á Heimsmeistaramótinu að loknum þremur umferðum. Liðið spilar lokaleiki sína í dag og á morgun. Eins og jafnan áður eru Akureyringar fjölmennir í landsliðshópnum og starfsliði. 

Liðið hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína og er í efsta sætinu með níu stig, næsta lið með átta. Ísland mætir Búlgaríu í dag kl. 13:30 að íslenskum tíma, en Búlgarir hafa tapað fyrstu þremur leikjum sínum. Unnar Hafberg Rúnarsson hefur skorað flest mörk Akureyringanna, fjögur. Hann skoraði þrennu í 6-5 sigri á landsliði Tævan, sem Alþjóða íshokkísambandið og Íshokkísamband Íslands rita gjarnan sem Kínverska Taipei. Þá hefur Jóhann Már Leifsson verið iðinn við stoðsendingarnar, samtals kominn með sex slíkar í fyrstu þremur leikjum liðsins. 

Hér að neðan eru úrslit leikjanna ásamt mörkum, stoðsendingum og markvörslum leikmanna úr röðum SA, núverandi og fyrrverandi, í fyrstu þremur leikjum liðsins.

  • Ísland - Tævan 6-5 (4-1, 0-2, 2-2)
    Mörk/stoðsendingar: Unnar Hafberg Rúnarsson 3/0, Jóhann Már Leifsson 0/3, Atli Sveinsson 0/1 - Alex Máni Sveinsson 1/0.
    Markvörslur: Helgi Ívarsson 26/31 (83,87%).
    Leikskýrslan
  • Ísland - Nýja-Sjáland 6-2 (2-1, 3-0, 1-1)
    Mörk/stoðsendingar: Unnar Hafberg Rúnarsson 1/0, Jóhann Már Leifsson 0/2 - Gunnar Arason 0/2, Ólafur Baldvin Björgvinsson 0/1. 
    Markvörslur: Róbert Steingrímsson 2/3 (66,67%) - Helgi Ívarsson 24/25 (96%).
    Leikskýrslan
  • Ísland - Kyrgystan 6-3 (1-0, 2-1, 3-2)
    Mörk/stoðsendingar: Ormur Jónsson 1/0, Jóhann Már Leifsson 0/1.
    Markvörslur: Helgi Ívarsson 34/37 (91,89%).

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30