Fara í efni
Pistlar

Íshokkí: SA Jötnar Íslandsmeistarar U18

SA Jötnar fagna Íslandsmeistaratitlinum. Myndin er af vef Skautafélags Akureyrar.

Annað ungmennaliða Skautafélags Akureyrar í U18 flokki, SA Jötnar, tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn um síðastliðna helgi með 10-2 sigri á Fjölni og 6-4 sigri á SR. 

Skautafélag Akureyrar teflir fram tveimur liðum í U18 flokknum og enda þau í tveimur efstu sætunum. Akureyrarliðin SA Jötnar og SA Víkingar eiga bæði eftir einn leik á tímabilinu, innbyrðis leik, en lið Fjölnis og SR hafa lokið keppni. SA Jötnar hafa nú þegar unnið níu af 11 leikjum sínum. 

Tveir leikmenn SA Jötna, Mikael Eiríksson og Askur Reynisson, eru langstigahæstu leikmenn í þessum flokki. Mikael hefur nú þegar skorað 25 mörk og er með 39 stig, það eru samanlögð mörk og stoðsendingar. Askur hefur skorað 19 stig og er samtals með 37 stig. Alex Ingason er stigahæsti leikmaður SA Víkinga og þriðji stigahæsti maður mótsins með 14 mörk og 32 stig samtals. Magnús Sigurólason úr SA Jötnum er stigahæsti varnarmaður mótsins með 26 stig.

Markverðir beggja liðanna, ásamt reyndar fleiri leikmönnum, hafa átt annasaman vetur með yngri landsliðum Íslands. Elvar Sigurðsson í marki Jötna er með besta markvörsluhlutvallið, 89,63% í sex leikjum, en næstur kemur Elías Rúnarsson hjá SA Víkingum með 87,28% í fimm leikjum.

Íslandsmótið - leikir og tölfræði.

Frá þessu er greint á vef Skautafélags Akureyrar.

„Lucy, hún er löngu dauð!“

Orri Páll Ormarsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 14:00

Hin hollu ber hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
19. ágúst 2026 | kl. 10:20

Hús dagsins: Háagerði/Syðri-Tjarnir

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. ágúst 2026 | kl. 09:30

Ævispor

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
18. ágúst 2026 | kl. 09:00

Stórkostleg hátíð blásara

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 14:30

Með höfuðið í gini ljónsins

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
15. ágúst 2026 | kl. 06:00