Fara í efni
Pistlar

Björn Steinar leikur í Akureyrarkirkju í dag

Björn Steinar Sólbergsson, fyrrverandi organisti Akureyrarkirkju, kemur fram á Sumartónleikum í kirkjunni í dag. Björn Steinar var upphafsmaður Sumartónleika ásamt eiginkonu sinni, Hrefnu Harðardóttur, en 40 ára afmæli þessarar næst elstu tónleikaraðar landsins er fagnað í sumar með fernum tónleikum.

Orgeltónlist hefur alla tíð átt sinn sess á hátíðinni, því eitt af markmiðum hennar er að gestir fái að heyra í merku orgeli Akureyrarkirkju, að því er segir í tilkynningu. Á efnisskránni í dag eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Louis Vierne, Pál Ísólfsson, Jón Nordal, Báru Grímsdóttur og Daníel Þorsteinsson, auk þess sem Björn Steinar frumflytur nýtt verk, Festival Fanfare, eftir Þorvald Örn Davíðsson, stjórnanda Kórs Akureyrarkirkju og organista í Eyjafjarðarsveit.

  • Tónleikarnir hefjast kl. 17.00. Aðgangur er ókeypis en tekið á er móti frjálsum framlögum. 

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00