Þurfum við alltaf að vera að verða betri?
22. september 2026 | kl. 06:00
Akureyrar- og Glerársóknir standa saman að messu í Akureyrarkirkju í kvöld kl. 20. Um ræðir gula messu, sem hluta af vitundarvakningunni Gulur september.
Á meðal þess sem er á dagskránni er hugleiðing aðstandanda, en þar talar Tinna Arnar, móðir Ólafar Töru Harðardóttur, baráttukonu sem lést fyrir tæpum tveimur árum. „Það væri yndislegt að sjá ykkur sem flest í Gulu messunni í Akureyrarkirkju í kvöld kl 20. ... Ég er svo óendanlega þakklát henni Tinnu fyrir að koma og deila sinni sáru reynslu en miklu visku,“ skrifar séra Hildur Eir Bolladóttir í hvatningarorðum til fólks um að mæta í messuna í kvöld.
