Fara í efni
Pistlar

Tugi milljóna kostar að lagfæra orgelið

Mynd af vef Akureyrarkirkju

Skoðun erlendra sérfræðinga hefur leitt í ljós að ástand pípuorgelsins í Akureyrarkirkju er verra en álitið var og ljóst að nauðsynlegt viðhald mun hlaupa á tugum milljóna króna. Hjörtur Narfason, formaður Sóknarnefndar Akureyrarkirkju, segir að búist sé við að ítarlegri greining á ástandi og viðgerðarkostnaði liggi fyrir innan nokkurra vikna.

Orgel Akureyrarkirkju var byggt árið 1961 og endurbyggt árið 1995. Eini innlendi orgelsmiðurinn hættir um næstu áramót og er fullbókaður þangað til. Að sögn Hjartar þarf því að fá erlenda orgelsmiði til að yfirfara og gera við orgelið, enda er viðhald á pípuorgeli sérstakt handverk sem krefst mikillar nákvæmni og reynslu. Orgel eins og í Akureyrarkirkju er samsett úr þúsundum einstakra hluta sem vinna saman og öll viðhaldsvinna er tímafrek og kostnaðarsöm.

Pípuorgelið í Akureyrarkirkju er samsett úr þúsundum einstakra hluta og spennandi að skoða inn í orgelið, ef svo má segja. Mynd af vef Akureyrarkirkju.

Vinir Akureyrarkirkju styðja við endurbótaverkefni

Viðhald orgelsins er einn af nokkrum stórum viðhaldsþáttum kirkjunnar sem sóknarnefndin stendur frammi fyrir. Nýlega er lokið viðamikilli viðgerð á þaki safnarheimilisins og næst stendur til að endurnýja eldhúsið í safnaðarheimilinu. Fleiri kostnaðarsamar framkvæmdir eru nauðsynlegar; meðal annars þarf að endurnýja kirkjugólfið og lagfæra utanhússklæðningu.

Akureyrarkirkja var vígð árið 1940 og styttist því í 100 ára afmæli hennar. Sóknarnefndin samþykkti í fyrra 15 ára viðhalds- og endurbótaáætlun, sem miðar að því að kirkjan verði í sínu besta standi á afmælinu. Stofnað hefur verið styrktarfélagið Vinir Akureyrarkirkju, sem hefur þann tilgang að styðja við endurbætur og viðhald á grunni 15 ára áætlunarinnar. Félagið mun vinna að fjáröflun vegna framkvæmdanna, ásamt því að standa fyrir vitundarvakningu um sögu- og menningarlegt gildi Akureyrarkirkju. Félagið er opið öllum sem styðja tilgang þess og hægt að skrá sig í það hér.

Fjandafæla, sokkapör og rósakrans

Jóhann Árelíuz skrifar
23. ágúst 2026 | kl. 06:00

Við elskum þessar mellur

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
22. ágúst 2026 | kl. 06:00

„Lucy, hún er löngu dauð!“

Orri Páll Ormarsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 14:00

Hin hollu ber hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
19. ágúst 2026 | kl. 10:20

Hús dagsins: Háagerði/Syðri-Tjarnir

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. ágúst 2026 | kl. 09:30

Ævispor

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
18. ágúst 2026 | kl. 09:00