Fara í efni
Pistlar

Ásbjörn skoraði í jafntefli við meistarana

Byrjunarlið Íslands í gær. Aftari röð frá vinstri: Sölvi Snær Ásgeirsson, Brynjar Óðinn Atlason, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Egill Orri Arnarsson, Sigurður Jökull Ingvason og Einar Freyr Halldórsson. Fremri röð frá vinstri: Gabríel Snær Gunnarsson, Snorri Kristinsson, Sigurður Breki Kárason, Alexander Rafn Pálmason og Þorri IngólfssonMynd: KSÍ

Íslendingar gerðu 2:2 jafntefli við Spánverja í gær í fyrsta leik annarrar umferðar undankeppni Evrópumóts U19 landsliða í knattspyrnu.  Staðan var 2:0 fyrir Spánverja en Íslendingar skoruðu í tvígang með skömmu milli í seinni hálfleik; það var Þórsarinn Ásbjörn Líndal Arnarsson sem jafnaði metin með marki á 77. mín.

Leikið er í fjögurra liða riðlum víða í Evrópu þessa dagana, Ísland er í riðli með Spáni, Finnlandi og Wales í borginni Newport í Wales. Þrjú lið komast áfram í þriðju og síðustu umferðina.

Jafntefli verða að teljast frábær úrslit því Spánverjar eru í fremstu röð eins og alkunna er og ríkjandi Evrópumeistarar í aldursflokknum. Þeir hafa raunar leikið til úrslita í síðustu þrjú skipti; urðu meistarar eftir sigur á Norður-Írum 2024, töpuðu úrslitaleik fyrir Hollendingum 2025 og unnu Þjóðverja í úrslitaleik fyrr á þessu ári.

Sigurður Jökull Ingvason stóð í marki Íslands í gær og Egill Örn Arnarsson var vinstri bakvörður. Báðir eru Þórsarar en leikmenn U19 liðs Midtjylland í Danmörku. Þórsarinn Ásbjörn Líndal, sem gerði seinna mark Íslands, var miðvörður í hjarta varnarinnar og aftast á miðsvæðinu léku hlið við hlið KA-maðurinn Snorri Kristinsson og fyrirliðinn Einar Freyr Halldórsson, leikmaður Þórs. Á hægri kantinum var Þorri Ingólfsson, Víkingurinn sem lék með Þór seinni hluta nýliðins Íslandsmóts. Þórsarinn Sverrir Páll Ingason var á meðal varamanna.

Spánn náði forystu snemma leiks með marki Alexis Ciria, leikmanns varaliðs Real Madrid, úr vítaspyrnu og Egill Örn varð fyrir óláni að gera sjálfsmark á 35. mín. Renndi sér í boltann eftir fyrirgjöf, hugðist koma honum aftur fyrir endamörk en boltinn endaði í netinu án þess að Sigurður Jökull fengi rönd við reist.

Akurnesingurinn Gabríel Snær Gunnarsson, sem er samningsbundinn Elfsborg í Svíþjóð, gerði fyrra mark Íslands á 72. mínútu og varnarmaðurinn Ásbjörn Líndal jafnaði fimm mín. síðar með þrumuskoti úr miðjum vítateignum eftir laglegt spil í kjölfar hornspyrnu.

Wales og Finnland gerðu einnig 2:2 jafntefli í gær þannig að öll liðin eru með eitt stig. Íslendingar mæta Finnum næst, á laugardaginn, og síðasti leikurinn er gegn heimamönnum í Wales þriðjudaginn 17. nóvember.


  • Nýtt fyrirkomulag var tekið upp fyrir undankeppni Evrópumóts U19 landsliða að þessu sinni. Þrjár umferðir fara fram; sú fyrsta var leikin í vor þegar Ísland vann sig upp úr B-deild.
  • Önnur umferð undankeppninnar er nú í gangi. Þrjú efstu liðin í hverjum riðli verða áfram í A-deild í þriðju og síðustu umferðinni.
  • 28 lið taka þátt í þriðju umferðinni, dregið verður 10. desember og leikið í vor. Þá fæst úr því skorið hvaða sjö þjóðir taka þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins ásamt Tékkum, en keppnin verður í Tékklandi frá 18. júní til 1. júlí á næsta ári.

Frétt akureyri.net í síðustu viku: Þórsarar áberandi í U19 landsliðinu

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00