Fara í efni
Pistlar

Þór tekur á móti KFG - nýtt nafn á 1. deildina

Þórsarar taka á móti KFG í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Karlalið Þórs í körfubolta tekur á móti liði KFG í sjöttu umferð 1. deildar karla í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag kl. 16.

Þórsliðið hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni og er í 9. sæti deildarinnar. Snæfell og Fjölnir eru í sætunum fyrir neðan, einnig með einn sigur, en Skallagrímur er á botninum með fimm töp.

Andstæðingar Þórs í dag, KFG úr Garðabæ, eru í 4. sæti deildarinnar, en liðið hefur unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. KFG vann Fjölni með 13 stiga mun í síðustu umferð, en Þórsarar töpuðu heimaleik gegn Haukum með 26 stiga mun.

  • Körfubolti
    1. deild karla, 6. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 16
    Þór - KFG

Körfuknattleikssamband Íslands tilkynnti nýlega breytingu á nafni 1. deilda karla og kvenna. KKÍ gerði samning við Bæjarins bestu ehf., eða Bæjarins beztu pylsur, eins og vörumerkið heitir. Fyrsta deild karla mun því hér eftir heita Bæjarins beztu deildin.

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30