60 ára stúdentar tóku söngsal í Kvosinni

Júbilantahátíð Menntaskólans á Akureyri fór fram í gærkveldi í Íþróttahöllinni, en þar koma saman afmælisárgangar skólans á hverju ári þann 16. júní. Mikil hefð er fyrir því að menntskælingar hittist líka í aðdraganda hátíðarinnar, geri eitthvað skemmtilegt saman og rifji upp gömul kynni. Blaðamaður Akureyri.net mætti í Kvosina um miðjan dag í gær, þegar fríður hópur 60 ára stúdenta mætti á söngsal eins og hefð er fyrir í MA.
Söngsalur heitir það, þegar nemendur koma saman í Kvosinni og syngja saman, til þess að fá frí í tíma eða eftir hádegi, til dæmis. Einhver með hæfileika til tónlistar sest við flygilinn og samsöngur ómar um alla ganga. Hugmyndin er að ómurinn berist inn á skólaskrifstofu, þannig að skólameistarinn heyri, fyllist hamingju söngsins og veiti nemendum svolítið frí í staðinn. Þessi hefð lifir enn góðu lífi í Menntaskólanum, en 60 ára stúdentar hafa engu gleymt frá sínum menntaskólaárum og tóku hástöfum undir í Kvosinni í gær.
Það er búið að vera mjög skemmtilegt að hittast aftur, og að syngja hérna saman
Við flygilinn sat Jóhannes Örn Vigfússon, 60 ára stúdent, píanóleikari og eðlisfræðingur. „Ég spilaði oft á píanóið hérna á söngsal áður, en við vorum tveir eða þrír sem skiptumst á að gera það,“ rifjar Jóhannes upp. „Við erum um 40 talsins, og mér þykir það góð mæting miðað við að þriðjungur árgangsins er ekki lengur á lífi. Af þeim sem eftir lifa, eru rúmlega helmingur hér í dag.“
„Það er búið að vera mjög skemmtilegt að hittast aftur, og að syngja hérna saman,“ segir Jóhannes, en það var ekki að sjá að það væru sextíu ár síðan þessi hópur útskrifaðist úr MA. Það var sérstaklega vel tekið undir í lokalaginu, þegar 'Hin gömlu kynni gleymast ei', var tekið með bravúr. Textinn var uppi á stórum skjá, en það virtist enginn þurfa á honum að halda í þessu lagi.
Jóhannes Örn við flygilinn góða sem hefur tryggt ófáum menntskælingum frí í gegn um tíðina. Mynd: RH
Karl Frímannson, núverandi skólameistari í MA, var viðstaddur söngsalinn og ávarpaði hópinn eftir söng. Hann þakkaði þeim kærlega fyrir og ítrekaði hvað Júbilantahátíðin sé skólanum dýrmæt. Hann þurfti reyndar ekki að gefa söngvurunum frí, þau eru frjáls eins og fuglinn fljúgandi. Mynd: RH
Vel skipulögð skemmtidagskrá
„Við erum búin að vera á ferðalagi í allan dag, við fórum yfir í Fnjóskadalinn þar sem fólk í hópnum hefur aðstöðu,“ segir Jóhannes, en það er algengt að það sé skipulögð dagskrá í kring um endurfundina. „Hópurinn hittist líka í gærkvöldi í mat en við fórum nú snemma í bólið til þess að vera hress fyrir ferðalag og Júbilantahátíðina í kvöld.“
Blaðamaður heyrði því fleygt fram einhversstaðar, að á Júbileringu verði allir aftur 21 árs, og forvitnast um það hvort að 60 ára stúdentar tengi við það. „Ég kannast nú ekki við það hjá mér, en ég er alltaf ungur,“ segir Jóhannes hress í bragði.


Kosningadagur

Ber hinu íslenska pyttsamfélagi vel söguna

Mendelssohn á Akureyri

Grasagarðshlutverk Lystigarðsins
