2.500 boðaðir í bólusetningu í dag
Bólusetningarátak vegna Covid-19 hófst eftir hádegi í dag á slökkvistöðinni á Akureyri. Ríflega 2.500 eru boðaðir í dag og fyrsta klukkutímann mættu um 500 manns. Opið er til klukkan 17.00
Hluti þeirra sem mæta í dag fá örvunarskammt – þriðju bólusetningu, en sumar eru að mæta í fyrsta skipti eða annað skipti.
Bólusett verður fjóra fimmtudaga á næstunni - klukkan 13.00 til 15.00 í öll skiptin.
- 18. nóvember
- 25. nóvember
- 9. desember
- 16. desember
Á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) kemur fram að send verði út boð í örvunarskammta. Þar segir ennfremur að þeim, sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki getað nýtt sér fyrri boð, sé velkomið að koma á auglýstum opnunartíma á Akureyri. Ekki sé þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn. Börn sem hafa náð 12 ára aldri eru velkomin í fylgd forráðamanna.
Á vef HSN segir jafnframt:
- Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar sex mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu.
- Bólusettum yngri en 70 ára býðst örvunarskammtur þegar 6 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu.
- Bólusettir 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar 3 mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu.
- Bólusett verður með bóluefni frá Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.
- Munið að 14 dagar þurfa að líða milli inflúensubólusetningar og bólusetningar gegn COVID-19.
- Þau sem eru búin með grunnbólusetningu og hafa fengið Covid eiga að bíða þangað til frekari fyrirmæli berast.
Orustan um Waterloo
Gefjun skóp ekki annan Játvarð Loðvík
Hvenær kemur flugstöðin?
Gráþröstur