Fara í efni
Pistlar

200 mega koma saman – sóttkví afnumin

Hátt í 10.000 manns losna undan sóttkví í dag þegar reglur um sóttkví vegna Covid 19 falla brott með reglugerð. Á miðnætti tekur svo gildi reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur í sér tilslakanir. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, tilkynnti um breytingarnar eftir fund ríkisstjórnarinnar í morgun.

Í dag verður birt reglugerð sem felur í sér afnám sóttkvíar vegna smita innanlands. Þessar breytingar taka gildi um leið og reglugerðin birtist í Stjórnartíðindum í dag. Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa því ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýnatöku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar. Reglur um einangrun verða óbreyttar.

Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.

Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð um takmörkun á samkomum sem gildir til og með 25. febrúar. Jafnframt fellur brott sérstök reglugerð um takmörkun á skólastarfi. 

Helstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi:

  • Almennar fjöldatakmarkanir: Fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla brott.
  • Verslanir: Fjöldatakmarkanir í verslunum falla brott.
  • Fjölmennir viðburðir: Heimilt verður að halda 1.000 manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. Heimilt er að halda hlé á viðburðum og selja veitingar án takmarkana.
  • Grímunotkun: Aðeins verður skylt að bera grímu ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra reglu.
  • Hreyfing: Sund- og líkamsræktarstöðvum sem og skíðasvæðum er heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.
  • Íþróttakeppni og -æfingar: Keppni og æfingar heimilar með 200 manns í hólfi.
  • Skólar: Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott. Þar með gilda almennar reglur um samkomutakmarkanir í skólum, þó með undanteknum til rýmkunar.
  • Skólaskemmtanir: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
  • Staðir með vínveitingaleyfi: Opnunartími lengdur um eina klukkustund, þ.e. heimilt að taka á móti gestum til miðnættis en allir þurfa að hafa yfirgefið staðinn kl. 01.00.

Kvenfélagið Hlíf

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
19. mars 2024 | kl. 06:00

Lagning

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
18. mars 2024 | kl. 11:30

Í leikhúsi hugans

Jón Óðinn Waage skrifar
17. mars 2024 | kl. 11:50

Hvar fær maður svona engisprettu?

Rakel Hinriksdóttir skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:00

Hin evrópska olía: Olea europaea L.

Sigurður Arnarson skrifar
13. mars 2024 | kl. 10:25

Siginn fiskur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
11. mars 2024 | kl. 11:30