Fara í efni
Pistlar

Vaðlaskógur

TRÉ VIKUNNAR XVI

Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur umsjón með 11 skógarreitum í Eyjafirði og má fræðast um þá og staðsetningu þeirra hér. Flaggskipið í flotanum er Kjarnaskógur. Hinir reitirnir eru ekki eins fjölsóttir en hver og einn hefur sinn sjarma.

 

Grisjað fyrir nýjum hjólastíg í október 2021. Þrítugur rússalerkiskógur rétt norðan við skógarböðin. Glæsilegur lundur af góðu kvæmi sem vaxið hefur upp í skógarskjóli. Þetta gæti orðið ágætis timbur. Mynd: Helgi Þórsson

Í kjölfar þess að Skógarböðin hófu starfsemi sína í jaðri Vaðlaskógar urðu breytingar á aðgengi skógarins. Flytja þurfti vatn úr Vaðlaheiðargöngum að böðunum. Farið var með leiðsluna í gegnum skóginn og búinn til göngu- og hjólastígur í leiðinni. Að auki má gera ráð fyrir að sumir gestir baðanna vilji fara í gönguferðir um skóginn áður eða eftir baðið. Því þykir okkur rétt að kynna þennan skógarreit aðeins betur fyrir lesendum. Það ætlum við að gera í nokkrum pistlum, en við byrjum á að endurbirta grein sem Aðalsteinn Svanur Sigfússon skrifaði í bókina: Ásýnd Eyjafjarðar. Skógar að fornu og nýju. Sú veglega bók var gefin út á 70 ára afmæli félagsins árið 2000 í ritstjórn Bjarna E. Guðleifssonar. Enn er hægt, fyrir áhugasama, að nálgast eintök í skrifstofu félagsins í Kjarnaskógi. Töflur og flestar myndir í þessari grein eru aðrar en í bókinni. Flestar myndirnar í pistli dagsins tók Helgi Þórsson í Kristnesi. Hann á einnig myndatexta sinna mynda og vann myndirnar úr bókinni Ásýnd Eyjafjarðar svo við gætum birt þær aftur. Að auki bjó Helgi til kortin sem hér má finna. Bróðir hans, Bergsveinn Þórsson, starfsmaður SE, bjó til töflurnar upp úr gagnagrunni félagsins. Fá þeir allir okkar bestu þakkir fyrir hjálpina og ýmsar upplýsingar og ábendingar. Það sem er í hornklofa hér að neðan er viðbót eða nánari upplýsingar við uppaflegu greinina. Annars er greinin orðrétt úr bókinni, nema skáletraðir myndatextar.

 

Gestir næra sig í Vaðlaskógi í júní 2019. Mynd: Ingólfur Jóhansson.

Síðan skógrækt hófst í Vaðlaskógi hafa áherslur félagsins breyst og þróast. Meginverkefni félagsins eru samt enn þau sömu og alla tíð: Að rækta skóg sem Akureyringar og nærsveitamenn geta notið.

 

Glæsilegt en sjálfsmíðað hlið við innkomuna í gamla Hakaskojalerkið, milli lækja. Birkihliðið er þannig tilkomið að myndarlegur furtoppur hefur fallið á birkitré og sveigt það niður í jörð, akkúrat yfir miðjum göngustíg. Mynd: Helgi Þórsson.

Forsagan

[Hér hefst grein Aðalsteins]Í fundargerðabók Skógræktarfélags Eyfirðinga er að finna eftirfarandi bókun: „Ár 1936, 13. febrúar, var stjórnarfundur haldinn í Skógræktarfélagi Eyfirðinga á Hótel Gullfossi kl. 2 e.h. Á fundinn voru mættir 5 bændur frá jörðunum Varðgjá, Veigastöðum og Hallanda. Auk þess var mættur á fundinn Ólafur Thorarensen bankastjóri. Tilefni fundarins var að fala land af bændum þessum til skógræktar. Eftir allmiklar umræður samþykktu bændurnir að láta af hendi til Skógræktarfélagsins landspildu neðan af landareign allra fyrrgreindra jarða með sérstökum fyrirmælum og yrði gerður um það sérstakur samningur, undirskrifaður af öllum aðiljum.“ Það var svo þann 9. apríl sama ár að þessi samningur var undirritaður. Samningurinn er ótímabundinn og enn í fullu gildi. Með honum afsala landeigendur umráðarétti yfir landi þessu til Skógræktarfélagsins með nokkrum skilyrðum, meðal annars því að landið verði einungis notað til skógræktar.

 

Jafnvel sjávarspendýrin kunna vel við skóg í Vaðlaheiði. Mynd: Sig.A.

Sjötta grein samningsins er athyglisverð og ber vott um þá bjartsýni og trú á viðfangsefninu sem nauðsynleg hefur verið til að ráðast í skógrækt í svo stórum stíl á skóglausu landi á fjórða áratug 20. aldar. Greinin hljóðar svo: „Sem greiðslu fyrir leigu á umræddu landi, ber ábúendum nefndra jarða, helmingur þess skógar, sem höggvinn kann að verða seinna meir á hinu afgirta landi, enda ákveði Skógræktarfélagið sjálft, hvenær og hvernig sú grisjun fer fram, og sje kostuð til jafns af öllum hlutaðeigendum, undir eftirliti Skógræktarfélagsins.“

 

Íslenski skógarfýllinn. Svolítið sérstakur skógarfugl, yst í Vaðlaskógi. Þar eru klettar og stutt til hafs. Mynd: Helgi Þórsson.

Friðun

Landið var girt um sumarið og strax hafist handa við gróðursetningar. Landspilda þessi liggur í sjó fram, um tveggja kílómetra löng, í misbröttum brekkum út með Pollinum austanverðum. Landslag og gróðurfar er fjölbreytt; mýrar og móar skiptast á við mela og klappir. Nokkrir lækir falla um reitinn og skarta fossum. Staðarvalið gegnt Akureyri er engin tilviljun, enda markmið félagsins með skógrækt á þessum stað skýrt: Að gera Akureyringum og nærsveitafólki mögulegt að njóta alls þess sem skógur býður uppá án þess að leggja á sig langferðir austur yfir Vaðlaheiði eða inn í Leyningshóla, sem á þessum tíma var eini skógurinn í héraðinu sem stóð undir nafni. Þegar þetta er skrifað, 64 árum eftir að skógrækt hófst í Vaðlaskógi, er þetta markmið óðum að nást, þó að Kjarnaskógur hafi tekið forystu sem útivistarskógur Akureyringa.

Þrjár loftmyndir af Vaðlaskógi. Sú fyrsta er frá Google Earth, tekin árið 2007. Hinar tvær teiknaði Helgi Þórsson til að auðvelda okkur yfirsýn yfir hvað þarna er að finna.

Gróðursetning

Þegar ráðist var í þetta stórvirki, að planta til skógar á tæpum 50 hekturum af skóglausu landi, stóðu menn frammi fyrir ýmsum vanda sem ekki er fyrir hendi nú á dögum. Einn var sá að útvega plöntur til gróðursetningar. Það reyndist þrautin þyngri, enda engin trjáplöntuframleiðsla í héraðinu. Varð því að hafa öll spjót úti og framan af voru plöntur útvegaðar með ýmsu móti. Keyptar voru plöntur, aðallega birki, úr trjáræktarstöðinni á Vöglum í Fnjóskadal en einnig voru farnar sérstakar ferðir í Vaglaskóg og teknar upp plöntur úr skóginum og fluttar vestur yfir heiði, „í melarendur og smá flög sem rist var ofan af.“ Gróðursett var í reitinn allt fram á sjöunda áratuginn þegar nær fullplantað var í landið, á þriðja hundrað þúsund plantna.

Smellið hér til að lesa allan pistilinn.

Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga

  • Vikulega birtist pistillinn Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga. Orðið hefur að samkomulagi að Akureyri.net birti hluta hvers pistils sama dag og hann kemur á vef félagsins í því skyni að vekja athygli á skrifunum.

     

Skógarjaðrar

Sigurður Arnarson skrifar
27. mars 2024 | kl. 10:30

Svona bara af því bara

Sigurður Ingólfsson skrifar
27. mars 2024 | kl. 10:02

Fannfergi

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
25. mars 2024 | kl. 11:30

Hús dagsins: Spítalavegur 15

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
24. mars 2024 | kl. 19:00

Gleðispillirinn og neyslunöldrarinn kveður sér hljóðs

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. mars 2024 | kl. 06:00

Eins gott að þú baðst ekki um bjúgu!

Orri Páll Ormarsson skrifar
22. mars 2024 | kl. 10:30