Fara í efni
Pistlar

Skammtað í aska

EYRARPÚKINN - 82
 
Á Hraunfelli var naumt skammtað og langtímum saman lítið að éta í kotinu en oftast nóg mjólkin og haustmatur saltaður sem súrsaður og tólgarskjöldur bræddur út á fisk þegar hann fékkst fram á vorið og fögnuðu memnn nýmetinu.

Framan af vetri fóru Hraunfellingar til rjúpna og skutu á fleiri fugla.

Komust allir bræðurnir á legg og urðu sumir heljarmenni að burðum eins og Gunnlaugur á Felli og Ingólfur á Skjaldþingsstöðum sem munaði ekki um að snara fimmtíukílóasekkjum á öxlina í Kaupfélaginu og báru á herðum sér upp alla sveit.

Stjáni var þrekmaður ef hann þurfti á að halda og enginn bræðra sló slöku við enda innrættur ýtrasti sparnaður og ódrepandi dugnaður frá blautu barnsbeini.

Voru þeir einróma um þetta Einar í Eyrarvegi og Ingólfur undir Fjöllum

Og alltaf var nóg að borða á Skjaldþingsstöðum enda enginn ísskápur í rafmagnslausum bænum.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Skammtað í aska er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00