Fara í efni
Pistlar

Nafnalágin

EYRARPÚKINN - 81
 
Pabbi nefndi það ekki en mamma bar svuntu að augum og sagði Pabbi þinn fékk aldrei nóg að borða í uppvextinum og fór í verra þegar hann var látinn fara í Þorbrandsstaði kornungur en þaðan strauk pabbi þeim í Hraunfell tólf ára gamall því hann var ekki kjarklaus og saknaði hlýju móður sinnar og bræðraslagsins uppi á Hraunfelli en snéri aftur með semingi og eftirsjá út í Þorbrandsstaði og sló Nafnalágina með Einari afa sínum sem þá var orðinn blindur.
 
Þegar ég spurði pabba hvað bitarnir hefðu verið stórir sem þeim bræðrum voru skammtaðir á Hraunfelli sýndi hann mér það milli þumals og vísifingurs og virtust mér kjötbitar þeir vera á stærð við tepoka.
 
Langafi á Þorbrandsstöðum var í fullu fjöri og bað sjáandi að lesa fyrir sig úr Bíbblíunni og feilaði aldrei hjá honum síður né greinar
 
Flettu upp þarna sagði afi.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Nafnalágin er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00