Fara í efni
Pistlar

Hraunfellsbræður

EYRARPÚKINN - 98
 
Bræðurnir níu á Hraunfelli komust allir á legg enda féll þeim ekki verk úr hendi.
 
Þeir þóttu frekar myndarlegir menn, einbeittir á svip og kattþrifnir nema tveir sem bættu það upp.
 
Elsti bróðirinn Gunnlaugur var brjóstvitur þrekmaður jafngamall öldinni sem hélt sig innan réttar búþekkingar sinnar og farnaðist vel á fjölmennu Felli með Björgu bústýru, tók á móti gestum á tröppunum eftir fimmtugt, sinnti úrvalssauðum og yfirgaf aldrei sveitina.
 
Stjáni var sléttur og felldur í andliti líkt og sérlundaður hrútur hvítur, reið einu sinni upp á Hérað þó hann kvæntist ekki einu sinni en Einar á Borgum grannur og kvikur og sigldastur bræðra, sótti sjó frá Siglufirði og Vestmannaeyjum og drakk í sig fjárbúskaparháttu í Skagafjarðarsýslu.
 
Guðmundur á Hauksstöðum þótti laglegur maður og myndaðist vel eins og mamma sýndi mér í albúminu í Eyrarvegi, réri úr Eyjum og gat verið meinhittinn í orðalagi en skammt milli skins og skúra í skaphöfn hans.
 
Ingólfur á Skjaldþingsstöðum var rammur að afli og fór ekki með veggjum í vinnubrögðum, ferðaðist lengst til Akureyrar tilneyddur en Þórhallur fíngerður og jarphærður bjó með Munda bróður sínum á Hauksstöðum og kom einu sinni á Bakkafjörð.
 
Steindór stundaði búfræðinám á Hvanneyri en námið fólst að mestu í að taka upp rófur á meðan skólastjóri og kennarar höfðu upp úr sér í hermangi höfuðborgar og eftir stormasama samyrkju með Stjána inni á Hraunfelli gerðist Steini kúabóndi í Hólkoti í Hörgárdal meitlaður í máli og dráttum.
 
Kalli hvarf úr sveitinni sökum berkla, starfaði lengstum á Reykjalundi, þótti kvenhollur og heimsótti Vopnafjörð á hverju sumri.
 
Yngsti bróðirinn Palli fæddur 1923 fór snemma út á Tanga og málaði þar og múraði í hléi við konu sína Elsu Höjgaard sem var eldri en Páll og rak mötuneyti í þorpinu en mátti ekki Hraunfelling sjá undir sínum borðum enda forfaðir hennar dýralæknir frá Danmörku sem kom til Íslands að rannsaka búfjársjúkdóma en eina undantekningu gerði Elsa frá reglunni með Vigni bróður sem mældi fitu síldar fyrir Sigurjón Þorbergsson sumarið sextíuogfjögur hálærður úr Höfn.
 
Kröfuharka í eigin garð og annarra einkenndi Hraunfellsbræður, þeir voru orðheldnir og skulduðu engum neitt en eins og bundnir á bás bágra kjara bernskunnar og fremur fulltrúar gamla tímans en nýja, stóðu fastar en hundar á roði með Framsókn og sauðkindinni en kusu skammlífan Bændaflokkinn þegar sá kostur gafst, lærðu ekki á vélar og þóttu ágætlega bölsýnir bústólpar sinnar sveitar, virtir og vel liðnir söngmenn.
 
Systurnar Kristrún og Margrét voru ekki bræður og sjaldan lengi um þær rætt sérstaklega þó væru vel giftar en Rúna og maður hennar Gunnar keyptu nýbýlið á Borgum af foreldrum mínum og Magga fór víða með þúsundþjalasmiðnum Kela sem gerði við allar vélar í Vopnafirði.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Hraunfellsbræður er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00