Fara í efni
Pistlar

Fjalla-Eyvindur og Halla

EYRARPÚKINN - 77

Frá því ég gat stautað fannst mér útilegumaðurinn Fjalla-Eyvindur hin mesta hetja.
 
Í huga mínum fór hann á handahlaupum yfir landið þvert og endilangt, stiklaði á jöklum líkt og dauðlegir á þúfum og hafði að engu lög og reglur kotunganna. Veruleikinn þó verri og mátti Eyvindur oft þola kulda og skort í myrkrinu upp til fjalla.
 
Sagnir herma að Eyvindur hafi aldrei óstelandi verið frá fimmtánda ári en var að öðru leyti vel þokkaður, skaphægur og öruggur til starfa.
 
Svo hljóp Eyvindur á Vestfirði og kynntist ungri ekkju er Halla hét og sögð lítt grandvör. Byggðu þau sér ból á Hveravöllum og héldust þar um hríð en lögðust þá á fé Borgfirðinga og heimtu kindur, grágæsir og endur áður en þau hröktust lengra inn á öræfin.
 
Þar byggði Eyvindur fjölskyldunni lítið hreysi en barn þeirra dó um veturinn undir Hofsjökli og nær páskum er Halla harmfull af hungri þegar Eyvindur heyrir þrusk, grípur sax og sálgar gráum hesti selfeitum.
 
En útileguparið lendi undir mannahöndum og voru látin fara í kirkju í Reykjahlíð en þá þurfti Eyvindur að ganga örna sinna og var fylgt út í kirkjugarð af tveimur mönnum, varpaði Eyvindur sér út fyrir garðinn og hvarf á handahlaupum í þokunni.
 
Þannig brutust þau áfram Eyvindur og Halla ýmist frjáls eða í áþján og voru dysjuð saman.
 
Móðir mín kenndi í brjósti um Fjalla-Eyvind og Höllu og eina minnilegustu setningu íslenskrar tungu mælti Halla silfurhærð í túnfæti á vori þegar sól brann á jökli og segull óbyggðanna skartaði upphöfðum bláma
 
Fagurt er á fjöllunum núna.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum síðustu misseri hefur akureyri.net birt kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Fjalla-Eyvindur og Halla er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Ilmbirki heima og erlendis

Sigurður Arnarson skrifar
09. september 2026 | kl. 09:00

Hvernig hefurðu það, í alvöru?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
08. september 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Knarrarberg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. september 2026 | kl. 02:00

Jól á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
06. september 2026 | kl. 06:00

Einfaldir karlmenn

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
05. september 2026 | kl. 06:00

Nemendur teknir sturlungatökum

Orri Páll Ormarsson skrifar
04. september 2026 | kl. 15:30