Fara í efni
Minningargreinar

Ari Baldursson

Leiðir okkar Ara lágu saman á Jótlandi 1994. Þá bjuggu þau Kolla í Almstok en við í Esbjerg. Oftast hittumst við hjá sameiginlegum vinum, Bjarna og Bryndísi í Vandel þar sem þau höfðu keypt gamlan bóndabæ og plássið gott. Fastur liður var að hittast á gamlársdag en einnig í barnaafmælum og öðrum viðburðum.

Það sem strax vakti athygli mína var að Ari var hjálpsamur og skjótráður. Hann var alltaf fyrstur til að mæta og aðstoða þegar þörf var á, hvort sem það var við að fylla gáminn þegar við fluttum heim eða einangra þök.

Að einangra þak var einmitt eitt okkar fyrsta verkefni. Við sátum í sólinni í Vandel í 27° og börnin að leika. Bjarni sagði að það þyrfti að einangra þakið á gamla bænum. Ari svaraði snöggt, áttu ull? Já, sagði Bjarni, glerull. Þá sagði Ari, þá drífum við Bensi okkur í það. Ég hélt að hann væri að grínast en það var alls ekki. Upp á loft förum við á stuttbuxum, og undir svörtu þaki, rífum við glerullina inn á loftið, ég hálfdrættingur á við hann. Eftir tvo tíma komum við niður eins og við værum með mislinga.

Næst lágu leiðir okkar saman í Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 2014 og þar störfuðum við saman til þessa dags. Ari vann þar af sama eldmóði við kennslu í rafeindavirkjun og ég þekkti frá fyrri tíð. Ævinlega með nýjar hugmyndir, drífandi, bæta, breyta og hugsaði alltaf um nemendur. Það voru nemendur sem skiptu öllu máli.

Ari var hreinskilinn og ekkert að skafa utan af því, a.m.k. ekki við mig og það kunni ég að meta. Hann átti sér mörg áhugamál og fróður um ótrúlegustu hluti svo ekki sé minnst á tónlistarmanninn Ara. Félagsvera og hrókur alls fagnaðar.

Þegar Ari lét af störfum í VMA samdist okkur svo að ég mætti nefna nafn hans ef mér lægi nokkuð við. Það var tilfellið í haust og sneri hann aftur í rafeindavirkjunina fullur orku, tilbúinn í slaginn…

... Svo er Ari bara farinn. Það eru engin almennileg orð sem lýsa því hvernig manni líður með það. Einhverskonar blanda af söknuði, trega, sársauka, tómi og einhverju sem ég næ ekki nafni á.

Ég votta Kollu, börnum og öðrum ættingjum mína dýpstu samúð. Guð geymi góðan dreng.

Benedikt Barðason

Ari Baldursson

30. september 2026 | kl. 08:00

Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið

14. september 2026 | kl. 08:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Anna Gréta Halldórsdóttir skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Íþróttafélagið Þór skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00

Halldór Hallgrímsson – lífshlaupið

28. ágúst 2026 | kl. 08:00

Halldór Hallgrímsson skipstjóri

Sigfús Ólafur Biering Helgason skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 08:00