Fara í efni
Minningargreinar

Ingunn Björk Jónsdóttir

Í dag, mánudaginn 14. september, blaktir fáni í hálfa stöng við Hamar.

Það er gert í minningu og virðingu góðs félaga í áratugi, en í dag kl 13.00 fer fram frá Akureyrarkirkju útför Ingunnar Bjarkar Jónsdóttur.

Ingunn var á sjötugasta og fimmta aldursári er hún lést þann 31. ágúst s.l eftir erfið veikindi.

Ingunn var mikill og góður Þórsari í áratugi, og lagði félaginu til hjálparhönd á ýmsum vettvangi. Ingunn var m.a ein af þeim gæðakonum er stofnuðu kvennadeild félagsins á sínum tíma og starfaði hún ötullega með þeim kjarnakonum í þeirri dýrmætu deild okkar Þórsara.

Ingunn var gift Árna Gunnarssyni, Árna sprett sem allir þekkja og studdi hún sinn mann, bæði á meðan á farsælum knattspyrnu- og handknattleikskeppnisferli hans stóð, sem og í félagsmálum fyrir félagið eftir að skór Árna voru komnir upp á hilluna frægu.

Ingunn og Árni bjuggu um tíma í Hamri, félagsheimili okkar, og var Árni starfsmaður félagsins um skeið og þá hjálpaði Ingunn til við hin ýmsu störf. Þau störf og það framlag er þakkað nú.

Svo voru þau hjón Ingunn og Árni dugleg að fylgja börnum sínum tveimur í æfingar og keppnir og voru eins og margir þórsarar með eldrautt blóð í æðum alla tíð.

Nú að leiðarlokum vill Íþróttafélagið Þór þakka Ingunni Björk samfylgdina og gengin spor og sendir eftirlifandi eigimanni Ingunnar, Árna Gunnarssyni og börnum þeirra sem öllum öðrum ástvinun þeirra sínar innilegustu samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Ingunnar Bjarkar Jónsdóttur.

Hvíli hún í friði Guðs.

Íþróttafélagið Þór

Flosi Kristinsson

Ásta F. Flosadóttir skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Flosi Kristinsson – lífshlaupið

03. október 2026 | kl. 06:00

Ari Baldursson – minningarljóð

30. september 2026 | kl. 19:30

Ari Baldursson

30. september 2026 | kl. 08:00

Ari Baldursson

Benedikt Barðason skrifar
30. september 2026 | kl. 06:00

Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið

14. september 2026 | kl. 08:00