Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið
Ingunn Björk Jónsdóttir fæddist í Innbænum á Akureyri 26. nóvember 1951. Hún lést á heimili sínu 31. ágúst 2026, 74 ára að aldri.
Foreldrar Ingunnar voru Jón Forberg Jónsson og Helga Stefánsdóttir og systkini hennar þau Stefán Karl, Sigríður María og Dómhildur Rúna. Þann 28. ágúst 1971 giftist Ingunn eftirlifandi eiginmanni sínum, Árna Jóhanni Gunnarssyni, f. 14. janúar 1951. Þau bjuggu allan sinn búskap á Akureyri.
Börn Ingunnar Bjarkar og Árna Jóhanns eru tvö:
1. Árni Þór Árnason f. 10. febrúar 1970, maki Carrie-Ann Chase f. 3. febrúar 1971. Synir Árna Þórs frá fyrra hjónabandi eru tveir:
a) Nico Andri f. 27. nóvember 1993, maki María Kirkdale Árnason f. 17. febrúar 1994
b) Anthony Logi f. 21. september 1999, maki Avianna Katherine Clempson f. 29. desember 1999.
2. Íris Björk Árnadóttir f. 10. mars 1973, maki Bjarni Ármann Héðinsson f. 5. febrúar 1971 og eiga þau fimm börn:
a) Karen Eva f. 22. mars 1992 - dætur hennar eru Birta Dögg f. 7. apríl 2009 og Telma Lind Smáradætur f. 7. júní 2013.
b) Elvar Frans f. 20. júlí 1996, maki Andrea Brá Hlynsdóttir f. 6. ágúst 1998. Börn þeirra; Askur Frans f. 27. október 2018, Mikael Frans f. 13. janúar 2021, Embla Ósk Egilsdóttir f. 27. maí 2016.
c) Alexander Ívan f. 31. júlí 1998, maki Kristjana Sigríður Kristjánsdóttir f. 15. maí 1999. Börn þeirra eru; Gabríel Sesar f. 6. desember 2021, Fanney Lind f. 15. nóvember 2024.
d) Amanda Ýr f. 13. september 2006, maki Ólafur Baldvin Björgvinsson f. 23. júní 2006.
e) Óliver Sesar f. 12. febrúar 2009.
Ingunn gekk sína skólagöngu í Barnaskóla Akureyrar og tók tvö ár til viðbótar í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hún vann við ýmis störf á Akureyri, m.a. verslunarstörf, við útkeyrslu og afgreiðslu hjá Morgunblaðinu, í Sundlaug Akureyrar og í mötuneyti Sjúkrahússins á Akureyri. Ingunn var mikil sauma- og prjónakona allt sitt líf og rak um árabil vefnaðarvöruverslunina Nýjar línur, með vinkonu sinni Kristínu Hjaltalín.
Ingunn var mikill Þórsari og starfaði fyrir félagið bæði í sjálfboðavinnu og sem launþegi í Hamri um tíma. Þá var Ingunn einn af stofnendum kvennadeildar Þórs á sínum tíma.
Útför Ingunnar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, mánudaginn 14. september 2026, klukkan 13.00.
Ingunn Björk Jónsdóttir
Halldór Hallgrímsson – lífshlaupið
Halldór Hallgrímsson skipstjóri
Elías Þorsteinsson