Fara í efni
Minningargreinar

Ingunn Björk Jónsdóttir

Það er með sorg og þakklæti sem ég kveð kæra vinkonu mína, sem hefur verið mér samferða í 60 ár.

Kynni okkar hófust í gegnum eiginmenn okkar, sem voru saman í handbolta og fótbolta. Það var á þeim tíma sem vináttan byrjaði að vaxa – fyrst í gegnum samveru hjónanna, en síðar í gegnum óteljandi samtöl, kaffistundir og hlýja nærveru sem fylgdi henni hvert sem hún fór.

Hún var einstaklega handlagin og gjafmild. Oft kom hún mér á óvart með fallegum hlutum sem hún hafði búið til í höndunum, alltaf af alúð og kærleika. Þessi rausnarskapur og hlýja einkenndu hana og gerðu hana að þeirri góðu konu sem allir dáðu.

Við fórum saman erlendis og þær ferðir geyma minningar sem ég mun ávallt bera með mér – léttleika, hlátur og samveru sem styrkti vináttuna enn frekar.

Hún fylgdist ávallt vel með fjölskyldu minni og spurði reglulega út í fólkið mitt. Það skipti hana máli að vita hvernig þeim gekk og það var hluti af hennar góða eðli.

Hún var góð kona – hlý, heiðarleg, traust og hjartahlý. Manneskja sem lét öðrum líða vel og skildi eftir sig hlýju hvert sem hún fór. Vinátta okkar var mér ómetanleg, og minningarnar um hana munu lifa áfram í hjarta mínu.

Anna Gréta Halldórsdóttir

Eiríkur Bóasson

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. október 2026 | kl. 15:35

Eiríkur Bóasson

16. október 2026 | kl. 15:30

Flosi Kristinsson

Ásta F. Flosadóttir skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Flosi Kristinsson – lífshlaupið

03. október 2026 | kl. 06:00

Ari Baldursson – minningarljóð

30. september 2026 | kl. 19:30

Ari Baldursson

30. september 2026 | kl. 08:00