Fara í efni
Minningargreinar

Halldór Hallgrímsson skipstjóri

Í dag föstudaginn 28. ágúst verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju Halldór Hallgrímsson skipstjóri sem lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð þann 14. ágúst á 95. aldursári.

Við sjómenn á Akureyri sem erum komnir um og yfir miðjan aldur munum Dóra eins og hann var alltaf kallaður sem spengilegan og glaðlegan mann og nafn hans við síðutogarann Svalbak EA 2 og skuttogarann Svalbak EA 302 er meitlað í stein minninga okkar sem og merka sögu Útgerðarfélags Akureyringa

Margir okkar sjómanna sem nú kveðjum hinstu kveðju, kveðjum skipstjórann okkar og allir þeir sem með honum sigldu eru á einu máli um að það hafi verið einstaklega gott að vera skipverji hjá og með Halldóri, á það bæði við um gamla sem og nýja Svalbak eins og annars vegar síðutogarinn og skuttogarinn hétu.

Halldór var fæddur á Snæfellsnesi og fljótt sótti hann í æsku sjóinn og það varð svo æfistarf hans, fyrst á skipum sunnanlands en svo leiddu örlögin Halldór norður í land, fyrst á Siglufjörð en loks flutti hann til Akureyrar og réðst til Útgerðarfélags Akureyrar árið 1956, fyrst á Harðbak EA 3 og frá árinu 1963 skipstjóri á síðutogaranum Svalbak EA 2.

Halldór Hallgrímsson virðir fyrir sér líkanið fallega af Svalbak EA 302 þegar það afhjúpað 1. nóvember 2023. Dætur hans, Helga og Halla, fyrir aftan Halldór. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þótt sjórinn hafi togað í Halldór snemma þá var hann mjög vel lesinn og það var einstaklega gaman að hlusta á Halldór segja frá hinu og þessu, þylja upp úr og vitna í jafnvel heimsbókmenntir og í gamni sagði hann oft að þarna væri Snæfellingnum í honum vel lýst.

Halldór var annar af tveimur skipstjórum ÚA sem sóttu „Stellurnar“ svokölluðu til Færeyja árið 1973, en ÚA hafði fest kaup á glæsilegum skuttogurum í Klaksvík í Færeyjum. Þau skip fengu svo hin íslensku nöfn, Svalbakur EA 302 og Sléttbakur EA 304. Halldór lét hafa eftir sér að Stellurnar væru bestu og fallegustu skuttogarar sem til væru og um það eru margir sammála.

Halldór var skipstjóri á Svalbak allt til þess að hann tók við togaranum Sólbak undir loks starfsferils síns sem skipstjóri og gekk frá borði um áramótin 1992 - 1993 eftir tæpa 30 ára skipstjórn hjá ÚA.

Halldór var einstaklega farsæll skipstjóri alla tíð og fiskimaður góður og færði hann ásamt einvala áhöfn skipa sinna dýrmætan farm til vinnslu að landi.

Halldór var einstaklega glaður og þakklátur þegar við fyrrum sjómenn ÚA réðumst í það að láta smíða líkan af „Stellunum“ og ekki var gleðin minni hjá gamla manninum þegar hann var beðinn ásamt Sigurlaugu Magnúsdótturn ekkju Áka Stefánssonar skipstjóra á Sléttbak EA 304, að afhjúpa líkanið af Stellunum þann 1. nóvember 2023, nákvæmlega upp á dag 50 árum eftir að Halldór ásamt Áka sigldu þessum glæsilegu skuttogurum tveimur í fyrsta sinn inn Eyjafjörð í heimahöfn á Akureyri.

Ég veit að Halldóri þótti þetta einstaklega falleg stund er við upplifðum daginn þann 1. nóvember 2023 og maður fann það á einstaklega hlýju handtaki Halldórs við það tilefni að gamli maðurinn var glaður að sjá Stelluna sína Svalbak EA 302 verða mótaða aftur og til langframa geymd hjá okkur Akureyringum. Augu hans sindruðu og gleðina mátti lesa úr svipbrigðum. Það var falleg og ógleymanleg stund sem ekki gleymist.

Síðustu ár hafa verið Halldóri erfið en hann fékk áfall og var bundinn við hjólastól frá þeim degi.

Eiginkona Halldórs, Gígja Möller lést þann 10. september árið 2018 og það var Halldóri mikið áfall þegar eiginkona lést.

Sennilega var Halldór því saddur lífsdaga og tilbúinn að mæta skapara sínum þegar kallið kom þann 14. ágúst teinréttur og virðulegur sem var eins og við munum muna hann.

Fyrir hönd fyrrum sjómanna ÚA sendum við dætrum Halldórs, sem og öllum öðrum ættingjum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum almættið að varðveita og blessa minningu góðs félaga og samstarfsmanns.

Í dag mun fáni blakta í hálfa stöng við minnisvarðann okkar um síðutogara í minningu hins látna félaga okkar og sannarlega er saga Halldórs Hallgrímssonar skipstjóra skráð í þá merku sögu.

Fyrir hönd fyrrum sjómanna Útgerðarfélags Akureyringa.

Sigfús Ólafur Biering Helgason

Halldór Hallgrímsson – lífshlaupið

28. ágúst 2026 | kl. 08:00

Elías Þorsteinsson

Jóhann Hauksson skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Björgunarsveitin Týr skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 14:30

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Jón Birgir Guðmundsson skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 11:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Anna Sævarsdóttir skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 06:00

Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson

Kolfinna Ósk Helgadóttir, Magnea Steinunn Hagalín og Nanna Amelía Baldursdóttir skrifa
06. ágúst 2026 | kl. 06:00