Ari Baldursson
Kveðja frá musterisriddurum í Öskju.
Í dag, miðvikudaginn 30. september, fer fram frá Akureyrarkirkju útför Ara Baldurssonar.
Ari gekk í Musterisriddararegluna Öskju á Akureyri fyrir nokkrum árum og það kom fljótt í ljós að þar fór einstaklega vandaður drengur og góður í hvívetna enda var hann fljótt kallaður til ábyrgðarstarfa í reglu vorri.
Ari var einkar lausnamiðaður og sérlega glaðlyndur og alltaf var stutt í hlátur hjá honum sem svo smitaði nærumhverfi hans og það var einkar góð ára sem fylgdi honum alla tíð.
Fagmennska og trygglyndi var einkenni hans í öllum störfum og alltaf var hann tilbúin að leggja lið í hverju því sem hann var beðinn að taka að sér fyrir regluna okkar og það var einkar gott að vinna með honum.
Við sáum það strax að Musterisriddarareglan var honum jafn dýrmæt og hann var reglunni okkar dýrmæt stoð og ótímabært andlát kærs bróður okkar reglumanna var okkur mikið áfall.
Dómur almættisins hefur verið upp kveðinn og ekkert fær því breytt, þó sár sé, og okkar kæri vinur Ari Baldursson leggur nú í himnaför miklu fyrr en áætlað var og við eigum þá einu ósk að biðja honum alls hins besta á leið sinni í himnasalinn eilífa og algóður Guð taki honum mót og fái honum sæti er honum ber.
Það er skarð fyrir skildi í reglunni okkar og við munum minnast okkar kæra reglubróður Ara Baldurssonar með innilegu þakkæti og virðingu, og um leið syrgjum við einkar góðan dreng.
Missir, sorg og söknuður fjölskyldu Ara er þó mestur og eftirlifandi eiginkona hans, Kolbrún Reynisdóttir og börn þeirra þrjú ásamt öllum öðrum ástvinum horfa nú á bak elskandi eiginmanni, föður og afa, og það skarð er hann skilur eftir er stórt.
Við reglubræður í Musterisriddarareglunni Öskju sendum þeim öllum okkar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur og biðjum almættið að styrkja þau og umvefja þéttu faðmlagi þessa dimmu daga, en munið að þakka fyrir líf Ara og það getið þið verið fullviss um að í minningunni blasir við mynd um glaðværan góðan dreng sem var uppfullur af hlýju og kærleik ykkur öllum til handa.
Hugur okkar allra reglubræðra er með ykkur kæra fjölskylda.
Við musterisriddarar lútum höfði í bæn og kærri þökk nú í hinstu kveðju okkar Ara Baldurssyni til handa.
Farðu í friði kæri bróðir, megi Guð gefa þér góða nótt.
Blessuð sé minning Ara Baldurssonar.
Reglubræður Öskju, reglu Musterisriddara Akureyri.
Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið
Ingunn Björk Jónsdóttir
Ingunn Björk Jónsdóttir
Halldór Hallgrímsson skipstjóri