Halldór Hallgrímsson – lífshlaupið
Halldór Hallgrímsson fæddur 8. júlí 1932 á Dagverðará á Snæfellsnesi. Foreldrar hans voru Helga Halldórsdóttir húsmóðir f. 18 júni 1903 dáin
13. desember 1991 og Hallgrímur Ólafsson bóndi og smiður f. 26. október dáinn 21. febrúar 1981.
Halldór var næst elstur í hópi sjö alsystkina. Gunnlaugur, Stefán, Inga Rósa, Jónas sem öll eru látin. Eftirlifandi eru Elín Björk og Aðalheiður. Eldri systkini Halldórs samfeðra voru Jónas, Ragnheiður, Rósa, Lilja og Guðrún. Uppeldissystur voru Lilja og Guðbjörg.
Halldór ólst upp á Dagverðará í stórum systkinahópi, á heimilinu voru líka móðurforeldrar hans og móðurbróðir. Lífið á bænum snérist um sjósókn og búskap. Hann fór barnungur í róðra með afa sínum. Snemma varð Halldór læs og var mjög fróðleiksfús og sótti mikið í bækur. Landspróf tók hann frá Reykholtsskóla. Eftir það lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík þar sem hann las fyrstu tvö árin utan skóla en fór suður í próf á vorin. Þar stundaði hann nám með það markmið að verða prestur. Í góðviðri eftir próf átti hann leið niður að Reykjavíkurhöfn. Þar togaði sjórinn ögn í hann og hann sótti um pláss sem flatningsmaður á togara. Árið var 1950. Frumraun hans var á togaranum Hallveigu
Fróðadóttur.
Hann sótti Stýrimannaskólann þaðan sem hann útskrifaðist árið 1956. Sama ár, 1956, réðst hann til Útgerðarfélags Akureyringa fyrst sem háseti og bátsmaður, síðar sem stýrimaður og skipstjóri. Skipstjóri varð hann á síðutogaranum Svalbaki EA 2 1963 og síðar nýjum skuttogara ÚA Svalbaki EA 302. Halldór kom í land árið 1992 og fór þá að sinna kompásréttingum í skipum.
Halldór kvæntist Lucindu Gígju Möller 2, júní 1956 á Akureyri. Gígja fæddist 25. apríl 1937 á Siglufirði. Hún lést á Akureyri 10. september 2018 eftir nokkra ára veikindi. Foreldrar hennar voru Friðný Sigurjóna Baldvinsdóttir frá Akureyri og Alfreð Möller frá Siglufirði.
Halldór og Gígja settust að á Akureyri og byggðu sér hús í Ásveginum þar sem dæturnar ólust upp. Þar bjuggu þau í 43 ár en fluttu þá í Skálateig.
Dætur þeirra eru: Helga f. 6. júlí 1959 uppeldis- og menntunarfræðingur á Akureyri og Halla f. 29. september 1960 rekstrarfræðingur á Akureyri.
Helga er gift Hauki Stefánssyni og synir þeirra Halldór Elfar f. 1981 og Hrannar Atli f. 1989. Kona Halldórs er María Rut Dýrfjörð og þeirra dætur eru Katla Dögg f. 2012 og Elma Lind f. 2014.
Halla er í sambúð með Magnúsi Gamalíel Gunnarssyni. Halla á Hildi f. 1978, Þórð f. 1981 og Hlyn f. 1993. Faðir þeirra er Halldór Gestsson, látinn 2014. Hildur er gift Jóni Ísleifssyni, þeirra dætur eru Gigja Lillý f. 2008 og Heiðdísi Hörpu f. 2011. Þórður á Berglindi Höllu f. 2002, Hauk Leo f. 2007 og Hrafn Leví f. 2010. Berglind Halla f. 2002. Sambýlismaður hennar er Sigurður Sigmarsson og eiga þau dótturina Matthildi Míu f. 2024. Kona Hlyns er Ingibjörg Bergman Bragadóttir.
Einnig ólu þau upp um tíma bróðurson Halldórs, Hallgrím Jökul Jónasson. Hann er kvæntur Ásdísi Þórðardóttur Ben og eiga þau börnin Jónas Jökul og Ólöfu Gígju.
Árið 2000 veiktist Halldór alvarlega og breytti það lífi fjölskyldunnar. Hann hlaut helftarlömun og málstol og varð aldrei samur eftir það. Hugur hans skertist ekki og gerði hann allt ti lþess að verða sjálfbjarga til að gera fjölskyldunni lífið léttara.
Halldór og Gígja voru dugleg að ferðast. Hann var virkur frímúrari, tók virkan þátt í starfi skipstjóra- og stýrimannafélagsins og var heiðursfélagi þar. Eftir að í land kom tók hann virkan þátt í starfi eldri skáta á Akureyri ásamt Gígju. Alla ævi var hann að bókelskur og viðaði að sér fróðleik úr ýmsum áttum. Hann átti auðvelt með að setja saman vísur og hafði gaman að því.
Halldór var mikill tungumálamaður, vel gefinn, trúaður, glettinn, stríðinn, gjafmildur og þrjóskur. Hann var jaxl!
Halldór lést á Hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 14.ágúst síðastliðinn og verður jarðsunginn í dag frá Akureyrarkirkju kl. 13
Elías Þorsteinsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson