Fara í efni
Menning

Málverk af Harðbak EA 3 eftir Jósep í Sandvík

SÖFNIN OKKAR – 144

Frá Iðnaðarsafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Í fyrra voru 80 ár liðin frá stofnun Útgerðarfélags Akureyringa. Af því tilefni var þann 1. júní 2025 opnuð sýningin Fiskur úr sjó – saga Útgerðarfélags Akureyringa í 80 ár á Iðnaðarsafninu. Sýningin stendur enn og er safngripur vikunnar þar til sýnis, en um er að ræða málverk eftir Jósep Kristjánsson frá 1969 af síðutogaranum Harðbak EA 3.

Jósep ásamt fjölskyldu sinni. Jósep og Guðrún Jóhannesdóttir eiginkona hans sitja, en lengst til vinstri stendur Kristján Jósepsson, faðir Sandvíkurmálarans. Jósep og Guðrún eignuðust þrjár dætur; efst til hægri er María Svava, milli foreldra sinna stendur Svanhvít Aðalheiður, en Nanna Kristín situr hjá móður sinni. Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/Minjasafnið á Akureyri

Jósep var fæddur 14. maí 1906 og bjó frá 10 ára aldri og fram í andlátið á bænum Sandvík í Glerárþorpi. Fyrst í foreldrahúsum en síðar með sinni eigin fjölskyldu og var hann gjarnan kenndur við bæinn. Hann vann lengst af í Krossanesverksmiðjunni, var til að mynda verkstjóri þar í um þrjátíu ár. Jósep var sjálflærður listamaður, hafði frá unga aldri gaman af því að lita og teikna en fór þó ekki að mála að neinu ráði fyrr en um og eftir 1950. Þar sem að hann fékkst lengst af við daglaunavinu þá málaði hann mest í frítíma sínum, jafnvel á nóttunni er aðrir sváfu. Helsta viðfangsefni Jóseps var íslensk náttúra, en einnig málaði hann skútur, skip og blóm.

Harðbakur EA 3 við Akureyri. Ljósmynd: Myndasafn ÚA/Minjasafnið á Akureyri.

Um og upp úr 1960 var Jósep orðinn nokkuð þekktur á Norðurlandi og var talað um að nánast annað hvert heimili á Akureyri ætti mynd eftir Jobba í Sandvík! Enda voru myndirnar hans vinsælar og við ýmis tækifæri lagði fólk inn pöntun hjá honum fyrir einu stofumálverki. Málverkin þóttu falleg, fremur ódýr og gerðu fólki af öllum stéttum kleift að skreyta heimili sín með málverkum. Jósep var sömuleiðis án efa afkastamesti málarinn í sögu Akureyrar, en verk hans munu skipta nokkrum þúsundum. Hann lést á aðfangadag 1985 og málaði nánast fram á síðasta dag.

Málverkið sem um ræðir málaði Jósep árið 1969. Það er 96x66 sentimetrar með ramma og er málað á viðarplötu líkt og flest verk Jóseps. Svo sem áður segir er málverkið af Harðbak EA 3. Fjölskylda Vilhelms Þorsteinssonar gaf Iðnaðarsafninu málverkið til varðveislu árið 2004. Vilhelm var á árunum 1964–1992 annar af tveimur framkvæmdastjórum ÚA, lengst af með Gísla Konráðssyni. Áður hafði hann verið aflasæll skipstjóri hjá félaginu á umræddum Harðbak. Harðbakur var þriðji síðutogarinn sem ÚA eignaðist, keyptur nýr árið 1950. Alls átti félagið fimm síðutogara þegar mest var. Á áttunda áratugnum viku síðutogarar fyrir skuttogurum og fóru þeir gömlu einn af öðrum í brotajárn. Síðastur var Harðbakur, en hann fór í brotajárn árið 1979 og hafði þá legið ónotaður við bryggju í nokkurn tíma. Harðbakur EA 3 var jafnframt með síðustu síðutogurum á Íslandi.

Iðnaðarsafnið er opið fimmtudaga til sunnudaga í vetur frá 13–16.