Fara í efni
Menning

Nonni: „Lífshugsjón mín er að skrifa ...“

SÖFNIN OKKAR – 149

Frá Nonnahúsi
_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


„Lífshugsjón mín er að skrifa ... Skáldaeðli getur ekki breyst.“

Þetta skrifaði Jón Stefán Sveinsson, Nonni, vini sínum 16. nóvember 1920, á 63. afmælisdegi sínum. Hér var ekkert ofsagt. Í Nonna var ólgandi skáldaeðli frá fyrstu tíð. Það var hins vegar hvorki sjálfgefið eða augljóst að draumar drengsins í svartbikaða húsinu við Aðalstræti yrðu að veruleika. Nonni ólst upp í fátækt þó faðir hans gegndi lengst af stöðu skrifara Péturs Havstein amtsmanns á Möðruvöllum, sem einmitt var faðir Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands og skálds.

Herder útgáfan í Freiburg í Þýskalandi, eitt af stóru útgáfufyrirtækjunum þar í landi, tók Nonna opnum örmum og gaf árið 1913 út fyrstu Nonnabókina: Nonni: Erlebnisse eines jungen Isländers von ihm selbst erzählt – Nonni: Brot úr æskusögu Íslendings, eigin frásögn eins og hún kallast í íslenskri þýðingu frá 1922. Þess má geta að eintak af þeirri bók er ekki til í Nonnahúsi.

Þó að lífsbaráttan væri hörð á bernskuheimili Nonna í húsinu við Aðalstræti, sem síðar var kennt við hann sjálfan, var þó að finna andlega næringu bæði innanhúss og utan. Slík næring er hverju skáldi bæði súrefni og blóðgjöf, en það eru bækur og sögufólk. Við götuna var Amtsbókasafnið, stofnað 1827. Á heimilinu var líka að finna bækur og sagnafólk. Í næstu húsum var Prentsmiðja Norður- og Austurumdæmisins og bókbindarinn og bókaútgefandinn Friðbjörn Steinsson í húsinu sem nú er Aðalstræti 46. Sögur og sagnafólk voru því allt í kringum Nonna, sem lærði ungur að lesa og var óstöðvandi lesandi. Tækifærið fyrir hann til að skrifa eigin sögur var þó fjarlægt og beið hans handan hafsins.

Tvær fyrstu bækur Nonna: Islandsblomster, samansafn greina um íslenskar fornbókmenntir sem hann hafði skrifað í dönsk tímarit og blöð og kom út 1906, og Et Ridt gennem Island sem kom út 1908 fjallar um heimsókn hans og ferð um heimalandið 1898. Báðar bækurnar voru gefnar út í Danmörku. 

Nonni hélt á vit ævintýra og nýs lífs árið 1869, þá aðeins 12 ára gamall. Áfangastaðurinn var kaþólskur skóli jesúíta í Amiens í Frakklandi. Að loknu námi var hann vígður kaþólskur prestur, fyrstur Íslendinga síðan fyrir siðaskipti. Nonni gerðist kennari við Sankti Andrésarskólann, alþjóðlegan menntaskóla jesúíta í Ordrup í Danmörku og kenndi þar frá 1883 til 1912, en þurfti að gefa kennslustarfið upp á bátinn sökum veikinda.

Það þekkja allir kennarann sem sagði sögur. Þannig kennari var pater Jón Sveinsson, Nonni. Hann naut þess að segja sögur frekar en að fara í trúboðsferðir í sveitum Danmerkur. Sögustundirnar með nemendum og skrif í dönsk tímarit ýttu undir þrá hans til að geta helgað sig ritstörfum. Jesúítareglan veitti honum takmarkað frelsi til þess, ekki fyrr en skrif hans náðu lýðhylli.

Í Nonnahúsi eru varðveittar margar útgáfur af bókum Nonna.

Árið 1906 kom út fyrsta bók Nonna, Islandsblomster, sem er samansafn greina um íslenskar fornbókmenntir sem hann hafði skrifað í dönsk tímarit og blöð. Hann fylltist stolti af þessu fyrsta höfundaverki, sem fékk líka lofsamlega dóma. Nonni sendi móður sinni og bróður í Kanada eintök af bókinni ásamt umfjöllun um hana. Næsta bók hans sigldi einnig yfir hafið til mömmu og Friðriks bróður árið árið 1908. Et Ridt gennem Island fjallar um heimsókn hans og ferð um heimalandið 1898, sem urðu reyndar aðeins tvær. Bækurnar báðar fengu góða dóma og seldust vel. Skáld var að fæðast.

Nonni árið 1913, á myndinni til hægri, og með japönskum þýðanda sínum.

Fyrrnefndar bækur eru frásagnir bundnar staðreyndum þó listrænir sprettir séu í textanum. Kannski voru þetta tilvaldar æfingar fyrir skáld í mótun. Nonni tók að senda frá sér smásögur og glíma við skáldsagnaformið. Þar var frelsið sem hann þráði. Efniviðurinn var kunnuglegur, æskuárin á Akureyri og Eyjafirði. Þar studdist hann við dagbækur föður síns og bréfaskriftir við móður sína. „En þetta eru að nokkru leiti „skáldskaparrit“ því alt þetta hefur ekki hændt mig selv“ skrifar Nonni í bréfi til móður sinnar. Hún svaraði í næsta bréfi frá Kanada, „Elsku Nonni minn, þú ert þá skáld.“

En nú tók pólitíkin að þvælast fyrir skáldinu. Viðræður um sjálfstæðismál Íslendinga voru í óleysanlegum hnút frá 1908. Íslendingar þóttu óbilgjarnir í samningaviðræðum og urðu óvinsælir í Danmörku. Áhugi danskra útgefanda á fullbúnu handriti Nonna að skáldsögu hvarf eins og dögg fyrir sólu. Hvað var til ráða? Yrði rithöfundaferillinn ekki lengri?

Kápur Nonnabóka frá ýmsum löndum.

Að ráði vina sinna endurskrifaði hann danska handritið á þýska tungu. Til að gera það sómasamlega hellti hann sér í að lesa þýskar bókmenntir. Áhuginn var svo sannarlega fyrir hendi í Þýskalandi. Eitt af stóru útgáfufyrirtækjunum, Herder, tók Nonna opnum örmum og gaf út árið 1913 bókina Nonni: Erlebnisse eines jungen Isländers von ihm selbst erzählt eða Nonni: Brot úr æskusögu Íslendings, eigin frásögn eins og hún kallast í íslenskri þýðingu frá 1922. Bókin seldist gríðarlega vel og Herder útgáfan bað um að rithöfundurinn skrifaði aðra eins fljótt og hann kæmi því við. Bækurnar urðu að lokum 12 talsins.


Nonnabækurnar slógu rækilega í gegn þegar þær komu út. Nonni fylgdi þeim eftir með 5000 fyrirlestrum víðs vegar um heiminn. Já þetta er hvorki innsláttarvilla né ýkjur heldur efni í annan pistil. Ævintýri bræðranna Nonna og Manna í Eyjafirði hafa ratað til lesenda um allan heim. Nonnabækurnar hafa komið út í um 40 löndum, jafnvel í Japan og Kína og selst í um sjö milljónum eintaka. Síðasta útgáfa af Nonnabók kom út á dönsku fyrir fjórum dögum – 15. nóvember: Nonni, en ung islændings oplevelser fortalt af ham selv, bókin sem Herder gaf út í Þýskalandi 1913. Án efa er Nonni frægasti íbúi Eyjafjarðar, í það minnsta fram að þessu.

Raunar var Nonni svo vel þekktur að þegar hann ásamt jesúítabræðrum sínum voru hraktir úr húsi sínu af nasistum þekkti yfirforinginn Nonna og bað menn sína um að sýna honum virðingu og að hann mætti halda eigum sínum. Þar á meðal voru handrit að bókunum hans og dagbækur. Nonni og trúbræður hans voru sendir til Kölnar þar sem hann lést í loftvarnarbyrgi 16. október 1944, 86 ára.

 

Bók

Fyrsta útgáfa

Fyrst á íslensku

Athugasemd

Islandsblomster

1906

—

Greinasafn; engin íslensk útg.

Yfir holt og hæðir

1908

1954

Ferðasaga

Nonni

1913

1922

Bernskusaga

Nonni og Manni

1914

1925

Bernskusaga

Sólskinsdagar

1915

1924

Bernskusaga

Borgin við sundið

1922

1923

Bernskusaga

Ævintýri úr eyjum

1927

1927

Bernskusaga

Á Skipalóni

1928

1928

Bernskusaga

Eldeyjan í Norðurhöfum

1933

1958

Ferðasaga

Hvernig Nonni varð hamingjusamur

1934

1955

Bernskusaga

Nonni segir frá

1936

1952

Frásagnir úr fullorðinslífi

Nonni í Ameríku

1948

1955

Ferðasaga, útgefin eftir lát Jóns

Nonni í Japan

1949

1956

Ferðasaga, útgefin eftir lát Jóns