Fara í efni
Menning

Faðir íslensku flugvirkjastéttarinnar

SÖFNIN OKKAR – 141

Frá Flugsafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Flugvirkjar hafa verið áberandi í umræðunni upp á síðkastið og því ekki úr vegi að minnast Brands Tómassonar flugvirkja, sem oft hefur verið nefndur faðir íslensku flugvirkjastéttarinnar. Í safnkosti Flugsafnsins eru ýmis skjöl og skírteini sem honum tilheyrðu og fyrir valinu varð meistarabréf Brands frá árinu 1953 og nokkur önnur skjöl sem honum tilheyrðu og draga upp betri mynd af þeim frumkvöðli sem hann var í þessari mikilvægu stétt.

Meistarabréf Brands Tómassonar.

Fyrstur í „seinna hollinu“

Eins og Brandur lýsti því sjálfur í viðtali við tímaritið Flug árið 1957, þá var hann ekki fyrsti íslenski flugvirkinn, en hann var sá fyrsti í „seinna hollinu“. Þrír aðrir höfðu þá þegar lært flugvirkjun en höfðu snúið sér að öðru, enda hafði atvinnuflug lagst af um tíma á fjórða áratugnum. Brandur var því fyrstur þeirra sem aldrei þurfti að hætta í faginu. Hann var yfirflugvirki hjá Flugfélagi Íslands í yfir 30 ár og starfaði hjá félaginu, síðar Flugleiðum, í tæpa hálfa öld. Þá var hann einn af stofnaðilum Flugvirkjafélags Íslands sem stofnað var árið 1947.

Inntökubréf frá Lufthansa frá árinu 1937.

Brandur Tómasson fæddist á Hólmavík 21. september 1914. Hann lærði vélsmíði og lauk sveinsprófi í þeirri iðn snemma árs 1937. Sama ár hélt hann utan til að hefja nám í flugvirkjun hjá Lufthansa í Þýskalandi. Því námi lauk hann 18. ágúst 1938. Að því loknu hélt hann til Kaupmannahafnar til að stunda nám við loftskeytaskóla en þá var óskað eftir starfskröftum hans við nýstofnað Flugfélag Akureyrar. Brandur hætti námi og hélt til Íslands þar sem hann hóf störf sem flugvirki, Það átti eftir að verða ævistarf hans, íslensku flugsamfélagi til heilla, og var hann oft nefndur sem faðir íslensku flugvirkjastéttarinnar.

Vísa sem Kristín Snæhólm flugfreyja samdi til Brands í tilefni af 60 ára afmæli hans. Hún lýsir Brandi vel, bæði sem fagmanni og samstarfsmanni en hann var vel liðinn meðal samstarfsfólks síns.

Sæmdur fálkaorðu fyrir framlag sitt

Frú Vigdís Finnbogadóttir sæmdi Brand riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir flugvirkjastörf 1. janúar 1983. Þá var Brandur sæmdur heiðursmerki Flugmálafélags Íslands í lok árs 1986. Sama ár hélt Flugvirkjafélag Íslands honum kveðjuhóf þar sem yfir 100 vinir og samstarfsmenn voru samankomnir í tilefni af tímamótunum.

Brandur var sæmdur heiðursmerki Flugmálafélags Íslands í desember 1986. Morgunblaðið 24. desember 1986.

Sæmdur fálkaorðu fyrir framlag sitt

Í árdaga flugsins voru vinnuaðstæður flugvirkja ekki ávallt upp á marga fiska; fáliðuð stétt sem vann oft við erfiðar aðstæður utandyra eða í köldum flugskýlum, og þurfti að reiða sig á útsjónarsemi og lagni þegar varahlutir voru af skornum skammti.

Starfsaðstæðurnar fóru batnandi og með árunum fjölgaði í stéttinni. Flugvirkjun var gerð að löggildri iðngrein árið 1952 og fékk Brandur meistarabréf í greininni ári síðar. Brandur var ötull við að leiðbeina mönnum til náms og eftir að hann lauk meistaraprófi tók hann yfir 30 nemendur í flugvirkjun.

Brandur lést 20. júní 1995, þá áttræður að aldri.

Brandur hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1983 fyrir framlag sitt til flugvirkjunar á Íslandi.