Heiðurspeningur Páls Steinssonar á Tjörnum
SÖFNIN OKKAR – 142
Frá Minjasafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Íslensk heiðursmerki eru af ýmsum toga. Þekktust er fálkaorðan sem notuð hefur verið frá 1921. Áður var helsta heiðursmerki Íslendinga Dannebrogsorðan og þekkja sömuleiðis margir til hennar. Minna hefur þó farið fyrir heiðursmerkinu „Ærulaun iðni og hygginda“, en það má telja sem fyrsta heiðursmerkið eða peninginn sem sérstaklega var ætlaður Íslendingum. Það var veitt á árunum 1833–1873 og er eitt slíkt varðveitt á Minjasafninu á Akureyri.

Upphaf heiðursmerkisins má rekja til ársins 1829. Þá skilaði fjármálaráðuneytið (rentukammerið) í Kaupmannahöfn inn tillögu til Friðriks VI konungs Íslands og Danmerkur þess efnis að heiðra þá Íslendinga sem skarað hefðu fram úr í sjávarútvegi, landbúnaði eða annarri nytsamlegri iðju. Viðurkenningin átti að vera í formi penings eða medalíu þar sem framan á væri vangamynd og nafn konungs, en aftan á texti ásamt nafni viðtakanda. Tók konungur vel í erindið en bað rentukammerið um að útfæra hugmyndina betur með nákvæmari skýringum varðandi gerð og úthlutunarreglur. Í kjölfarið ráðfærði rentukammerið sig við Finn Magnússon etatsráð og leyndarskjalavörð í Kaupmannahöfn. Niðurstaðan varð sú að framan á peningnum var vangamynd af konungi ásamt orðunum „Friðrik hinn sjötti Danmerkur konungur“, en aftan á krans skreyttur eikarlaufum utan um orðin „Ærulaun/ iðju og hygginda/ til eflingar/ almennra heilla“. Á hlið peningsins að neðanverðu var svo grafið í nafn viðtakanda. Var peningurinn samþykktur af konungi 25. desember 1832.


Tilkynning úr dagblaðinu Baldri 12. október 1868, bls. 60.
Ári síðar var heiðurspeningurinn veittur í fyrsta skiptið en 29. janúar 1873 í síðasta sinn. Hann var því í notkun í tíð fjögurra Danakonunga; Friðriks VI, Kristjáns VIII, Friðriks VII og Kristjáns IX. Allir veittu þeir Íslendingum heiðursverðlaunin á sinni tíð og var vangamyndinni breytt eftir því hvaða konungur ríkti hverju sinni. Textinn á bakhlið hélst þó alltaf sá sami. Þar að auki var árið 1836, í tíð Friðriks VI, skipt um mót og því eru til alls fimm gerðir af peningnum. Hann var 48mm í þvermál með hanka efst fyrir miðju og í gegnum hann var rauður borði með hvítum krossi sem myndaði danska fánann. Þyngd peningsins var eilítið misjöfn eftir tímabilum, eða 52–65 g. Alls munu 63 Íslendingar hafa hlotið peninginn á því 40 ára tímabili sem hann var í notkun.

Sá heiðurspeningur sem varðveittur er á Minjasafninu á Akureyri fékk Páll Steinsson bóndi og hreppstjóri að Tjörnum í Eyjafirði 12. ágúst 1868 fyrir jarðabætur sínar að Tjörnum. Páll var á undan sinni samtíð með margt og hafði sérstakan áhuga á framförum í landbúnaði. Jörðin þótti til fyrirmyndar og mun fólk hafa gert sér ferð að bænum til þess að skoða jarðabætur hans. Peningurinn var veittur í tíð Kristjáns IX og er því mynd af honum framan á ásamt orðunum „Kristján hinn níundi Danmerkur konungur“. Einkunnarorð peningsins eru á bakhlið og á hliðinni má lesa fullt nafn Páls. Harold Conradsen myndhöggvari sá um hönnun og leturgröft peningsins. Borðinn með litum Danmerkurfánans hefur varðveist sem og sérstök askja sem peningurinn er geymdur í.

Páll Steinsson á Tjörnum með heiðurspeninginn í barminum sem Kristján IX veitti honum 12. ágúst 1868. Myndin er líklega tekin á árabilinu 1878–1880, með votplötu aðferð (e. Wetplate). Ljósmynd: Anna Schiöth/Minjasafnið á Akureyri.
Einhvern daginn, líklega á árabilinu 1878–1880, hefur Páll gert sér dagamun og farið í Akureyrarkaupstað, stoppað við hjá frú Önnu Schiöth ljósmyndara og látið taka af sér ljósmynd. Ef fólki hafði verið veitt orða eða heiðursmerki var ekki óalgengt hér á árum áður að þau settu þau í barminn áður en farið var á ljósmyndastofu. Páll var fullmeðvitaður um þess hefð enda má greinilega sjá heiðursmerkið í barmi hans á umræddri ljósmynd.
Páll var fæddur 1821 og bjó alla sína ævi á Tjörnum, fyrst í foreldrahúsum en hann tók síðar við búinu. Páll giftist Maríu Jónsdóttur og eignuðust þau fimm börn. Hann lést 7. febrúar 1888. Sonarsonur og nafni Páls á Tjörnum, Páll Pálmason, gaf Minjasafninu heiðurspeninginn árið 1971.
