Fara í efni
Menning

Íslenskt útsaumsverk í alþjóðlegri samsetningu

SÖFNIN OKKAR – 150

Frá Listasafninu á Akureyri
_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Baldvin Ringsted
Hólar
2026
Útsaumur

Baldvin Ringsted (f. 1974) er fæddur og uppalinn á Akureyri en býr og starfar í Skotlandi. Í listsköpun sinni vinnur hann með fjölbreytt efni og miðla, meðal annars málverk, prent, skúlptúra og vídeó. Hann lauk meistaragráðu frá Glasgow School of Art árið 2007 og hefur sýnt verk sín víða um heim. Nýverið hlaut hann verðlaun frá The Scottish Landscape Awards.

Á sýningunni vinnur Baldvin með fundin útsaumsverk sem hann setur saman í nýtt og óvenjulegt landslag. Hann hefur sérstakan áhuga á þeim minningum og sögum sem hversdagslegir hlutir bera með sér. Í hverju útsaumsverki má finna ummerki um liðna tíma, heimili og fólk sem hefur átt hlutina, áður en þeir rata í nýtt samhengi í verkum listamannsins.

Verkið Hólar er sett saman úr krosssaumsmyndum sem Baldvin hefur fundið í Bretlandi, Þýskalandi og á Íslandi. Meðal þeirra er mynd af Hólakirkju, sem Lilla frænka hans, Guðbjörg Ringsted, fann fyrir hann. Í verkinu mætast þannig ólíkir staðir og uppruni í nýju myndrænu samhengi. Íslensku útsaumsverkin eru sjaldgæf og hafa sérstakt vægi í þessari alþjóðlegu samsetningu. Með því að raða saman þessum útsaumuðu myndum gefur Baldvin þeim nýtt líf og skapar landslag þar sem kunnugleg mótíf öðlast óvænta merkingu.

Baldvin segir um verkið:

„Þetta verk er sett saman úr kross-saum myndum, fundnum í Bretlandi, Þýskalandi og Íslandi. Það var hún Lilla frænka mín (Guðbjörg Ringsted) sem fann fyrir mig myndina með Hólakirkju. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að vera með góða agenta um allt land að leita að útsaum fyrir mig. Íslensku mótívin eru sjaldgæf en mjög gaman þegar ég get blandað þeim inn í alþjóðlegt samspil.“