Minjasafnið: Dúkur frá Alþingishátíðinni 1930
SÖFNIN OKKAR – 147
Frá Minjasafninu á Akureyri
_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Dagana 26.–28. júní 1930 fóru fram mikil hátíðarhöld á Þingvöllum þegar þess var minnst að 1000 ár voru liðin frá stofnun Alþingis Íslendinga. Í tilefni hátíðarhaldanna var framleitt mikið og fjölbreytt úrval minjagripa. Má þar meðal annars nefna barmmerki, fána, borðbúnað, konfekt- og vindlakassa, spilastokk ásamt ýmsu öðru. Inn á vefnum sarpur.is má finna hina ýmsu minjagripi frá hátíðarhöldunum sem varðveittir eru á söfnum landsins. Sarpur er menningarsögulegur gagnagrunnur sem yfir 50 íslensk söfn hafa aðild að.

Mannfjöldi í Almannagjá á Alþingishátíðinni á Þingvöllum 1930. Ljósmynd: Arthur Charles Gook/Minjasafnið á Akureyri.
Safngripur vikunnar er einn slíkur minjagripur, Alþingishátíðardúkur, sem varðveittur er á Minjasafninu. Alþingishátíðardúkinn var seldur á sjálfri hátíðinni en einnig var hægt að kaupa hann í verslun Egils Jacobsen í Reykjavík og Hafnarfirði. Í auglýsingu frá versluninni sem birtist í Morgunblaðinu 8. júní. 1930 segir meðal annars: „Í dúkinn er ofin mynd af einum af fegurstu fossum landsins [Öxarárfossi], ásamt skjaldarmerki Íslands o. fl., með rósaverki í kring, í forn-norrænum stíl, og er dúkurinn ofinn bæði úr hör og silki“.

Raunar kom dúkurinn í tveimur gerðum, annars vegar sem hvítur hördúkur í alls átta stærðum og hins vegar úr bæði hör og silki. Þá gerð var hægt að fá í þremur litum, gulum, bláum og fjólubláum og kom í tveimur stærðum, 130x130 sm og 160x160 sm. Dúkurinn sem varðveittur er á Minjasafninu tilheyrir síðari flokknum og er blár að lit. Stærð hans er 120x130 og hefur hann á einhverjum tímapunkti verið skorinn til. Þar að auki varðveitir Minjasafnið á Akureyri einnig hvítan Alþingishátíðardúk ásamt fleiri minjagripum frá hátíðinni.

Auglýsing úr Morgunblaðinu 8. júní 1930, bls. 4.
Þess má í lokin geta að fjölmargir Akureyringar komu að eða tóku þátt í Alþingishátíðinni 1930. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi tók þátt í ljóðasamkeppni sem efnt var til vegna hátíðarinnar. Sendi hann inn hátíðarljóðið Að Þingvöllum 930–1930 og deildu þeir Davíð og Einar Benediktsson skáld með sér fyrsta sætinu í keppninni. Þá tók karlakórinn Geysir þátt í fyrsta íslenska söngmótinu sem fór fram á vegum Sambands íslenskra karlakóra. Einnig var á hátíðinni fimleikasýning og sýndu þar Akureyrarstúlkur listir sínar undir stjórn Hermanns Stefánssonar íþróttakennara svo nokkuð sé nefnt.

Karlakórinn Geysir á Alþingishátíðinni 1930 á Þingvöllum. Þar sungu Geysismenn sem hluti Landskórsins, 150 manna karlakórs sem skipaður var söngmönnum úr hinu nýstofnaða Sambandi íslenskra karlakóra; úr Karlakór Reykja víkur, Karlakór Ísafjarðar, Söngfélagi stúdenta, Karlakór KFUM og Karlakórnum Vísi frá Siglufirði. Jón Halldórsson, þáverandi ríkisféhirðir, stjórnaði. Geysir var annar tveggja kóra sem einnig söng einn og sér og Ingimundur Árnason stjórnaði þeim söng. Hinn var Karlakór Ísafjarðar. Ljósmynd: Minjasafnið á Akureyri

Tjaldbúðirnar á Alþingishátíðinni á Þingvöllum 1930. Ljósmynd: Arthur Charles Gook/Minjasafnið á Akureyri.