Bað um styrk til að reka baðhús fyrir bæjarbúa
SÖFNIN OKKAR – 143
Frá Héraðsskjalasafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Í síðasta pistli okkar kom Guðríður Norðfjörð við sögu en hún undirbjó og stofnaði fyrsta kvenskátafélagið á Akureyri. Það var árið 1923.
Guðríður var Jónsdóttir og kom ásamt Snæbirni Norðfjörð frá Ísafirði til Akureyrar vorið 1921. Um haustið voru þau gefin saman í hjónaband og eftir það var hún Guðríður Norðfjörð. Snæbjörn var verslunarmaður eða skrifari í íbúaskránum og Guðríður oftast húsmóðir. Hún var samt ýmislegt að brasa, fyrir utan það að stofna kvenskátafélag. Árin 1924 og 1925 birtust frá henni auglýsingar í blöðum þar sem hún sagðist kenna kjóla- og léreftasaum og bað þær stúlkur sem vildu sinna því að tala við sig sem fyrst. Veturinn 1925 – 1926 fór hún til Danmerkur ef marka má frétt sem birtist í Íslendingi í maí 1926:

Þessi mynd af Guðríði birtist í Morgunblaðinu árið 1977 með afmælisgreinum í tilefni 80 ára afmælis hennar.
Hárgreiðslustofu hefir frú Guðríður Norðfjörð opnað í Hafnarstræti 33. Hefir frúin síðastl. vetur dvalið í Khöfn og lært þar alt, sem að hárgreiðslu, hárbúnaði og útlitsfegrun viðvíkur, og hefir hin beztu meðmæli frá skóla þeim, er hún gekk á. Auk hárgreiðslu, hárbúnaðar og hárlitun kvenna, veitir frúin andlitsböð og nugg (massage) bæði konum og körlum, tekur í burtu vörtur, líkþorn og bólur, lagar og fægir neglur (manicure) og gerir yfir höfuð alt, það, sem, ››fegrunar-stofur‹‹ erlendis veita.
Hárgreiðslustofan var eftir því sem best er vitað fyrsta hárgreiðslustofan á Akureyri og sú fyrsta utan Reykjavíkur. Opnunartíminn var rúmur, frá kl. 8 f.h. til kl. 9 e.h. og var opið fyrir herra á mánudögum og fimmtudögum en fyrir konur alla aðra daga vikunnar.

Húsið hægra megin á myndinni er Brekkugata 1 þar sem hárgreiðslustofa Guðríðar var um tíma. Húsið er mikið breytt í dag. Mynd: Minjasafnið á Akureyri
Árið eftir (1927) var hárgreiðslustofan komin í Brekkugötu 1 og í nóvember 1929 var hún í Hafnarstræti 3, á heimili Guðríðar. Það var í þeim sama nóvember sem Guðríður skrifaði bréf til bæjarstjórnarinnar en þetta bréf er skjalið frá okkur að þessu sinni. Bréf Guðríðar byrjar svona:
Þar sem jeg hefi ákveðið að byggja, á næsta vori, baðhús með öllum nýtýzku útbúnaði til afnota fyrir bæjarbúa, gegn tiltölulega litlu gjaldi, og að jeg hefi ákveðið að það taki til starfa næsta sumar, leyfi jeg mjer hjermeð að sækja um styrk til reksturs slíks fyrirtækis. Fer jeg því hjermeð framá, að háttvirt bæjarstjorn sjái sjer fært að taka upp á fjárhagsáætlun 1930, styrk til fyrirtækisins, svo ríflegan sem hún telur fært, allt að kr. 2000.00 – tvö þúsund krónum -. Tel jeg þetta svo mikið heilbrigðis- og menningarfyrirtæki að jeg vænti góðra undirtekta af hálfu bæjarstjórnarinnar.

Guðríður fékk ekki styrkinn, ekki vegna þess að ekki væri þörf á baðhúsi heldur vegna þess að rétt þótti að bíða eftir niðurstöðum rannsókna á jarðhita í grenndinni.
Hárgreiðslustofan fluttist enn til og 1930 var hún opnuð í Ráðhústorgi 9 og var þá auglýst sem fullkomnasta hárgreiðslustofa sem kostur væri á hér á landi og Guðríður tók það sérstaklega fram að hún sjálf ynni allan daginn. Á staðnum var einnig boðið upp á aðgang að kerlaug með steypibaði á kvöldin.

Auglýsing sem birtist í Akureyrarblaðinu Íslendingi í nóvember 1929.
En Guðríður var ekki aðeins frumkvöðull í hársnyrtingu og snyrtingu á Akureyri því hún var einnig með verslun, þótt ekki verði á skjótan hátt séð hvenær sá rekstur hófst. Í versluninni var boðið upp á tóbaks- og sælgætisvörur og margs konar hreinlætis- og snyrtivörur. Allt virðist hafa verið með nokkrum blóma en það var ekki nema skammt liðið á árið 1931 sem allar vörur verslunar G. Norðfjörð voru auglýstar til sölu vegna vörubreytinga, allt átti að seljast. Í maí 1931 kom svo auglýsing í Vísi um að G. Norðfjörð, frá Akureyri, hafi opnað hárgreiðslustofu í Miðstræti 8b í Reykjavík.
Snæbjörn Norðfjörð fór ekki suður en lést nokkuð snögglega í ágúst 1934. Guðríður giftist seinna Boga Jóhannessyni sútunarverksmiðjueiganda í Reykjavík og upp frá því var hún Guðríður Jóhannesson.

Hárgreiðslustofa Guðríður var flutt í Ráðhústorg 9 árið 1930 þar sem skemmtistaðurinn Vamos er nú til húsa. Myndin er tekin síðar því útibú Landsbanka Íslands var á Ráðhústorgi 7a frá 1931 til 1954 og það virðast hermenn sem standa fyrir utan húsið númer 9 á þessari mynd. Fyrstu hermennirnir komu til bæjarins í maí árið 1940. Mynd: Minjasafnið á Akureyri.