Fara í efni
Matur

Þakklæti í skugga dökkrar fortíðar

MATARÞRÁ-INN

  • Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.


ÞAKKARGJÖRÐARHÁTÍÐIN

Sagan verður ekki sögð til fulls með mynd af brosandi landnemum og frumbyggjum við sameiginlegt borð


Fjórða fimmtudag í nóvember ár hvert safnast fjölskyldur í Bandaríkjunum saman við veisluborð og halda þakkargjörð. Hátíð sem á meðal annars rætur í þeim sið að fagna uppskerulokum og þakka fyrir gjafir jarðar. Flest okkar tengja þessa hátíð við fylltan kalkún, kartöflumús, trönuberjasósu og graskersböku. Fólk ferðast langar leiðir til að fagna með ættingjum og vinum, horfir á skrúðgöngur og amerískan fótbolta og gefur sér stund til að þakka fyrir það góða í lífinu. Fyrir mörgum er þetta fyrst og fremst dagur gleði og samveru en að baki þessarar töfrandi hátíðar liggur líka dökk saga ofbeldis og þrældóms. Sú saga verður ekki sögð til fulls með mynd af brosandi landnemum og frumbyggjum við sameiginlegt borð.


Sagan nær langt aftur

Sá siður að þakka fyrir uppskeru varð ekki til í Bandaríkjunum. Í Evrópu höfðu uppskeruhátíðir lengi verið hluti af árstíðabundnu samfélagslífi. Þegar afrakstur sumarsins var kominn í hús gafst tilefni til veisluhalda og þakklætis. Ísland var þar ekki undanskilið. Töðugjöld tíðkuðust hér langt fram á tuttugustu öld og enn er slík hátíð haldin í Rangárþingi. Í Þýskalandi lifir sambærileg hefð í Erntedank-hátíðinni. Á Englandi tíðkuðust sérstakir trúarlegir þakkargjörðardagar, þegar Guði var þakkað fyrir björgun úr hættu, regn eftir þurrka eða aðra atburði sem taldir voru merki um velþóknun hans.

Landnemarnir fluttu þessar hefðir með sér yfir Atlantshafið og héldu þeim við í Vesturheimi. Frumbyggjar Norður-Ameríku höfðu líka sínar eigin hefðir um þakklæti, uppskeru og tengsl mannsins við náttúruna. Þær voru til löngu áður en Evrópumenn námu þar land. Bandaríska hátíðin á því rætur í fleiri en einum menningarheimi, þótt enskar trúar- og uppskeruhefðir hafi haft mikil áhrif á mótun hennar.

Enskir landnemar koma á skipinu Mayflower árið 1620 til Plymouth á austurströnd Bandaríkjanna.

Hvað var það sem gerðist árið 1621?

Sá atburður sem síðar varð frægur sem „fyrsta þakkargjörðin“ átti sér stað í Plymouth haustið 1621. Enskir landnemar, sem komið höfðu með hinu fræga skipi Mayflower árinu áður, fögnuðu uppskeru sinni. Wampanoag-frumbyggjar tóku þátt í samkomunni, þar á meðal höfðinginn Ousamequin, sem Englendingar kölluðu Massasoit.

Heimildir lýsa þriggja daga veislu með mat og skemmtun. Þær gefa hins vegar takmarkaða mynd af því sem gerðist. Varðveittar enskar frásagnir segja okkur ekki hvernig Wampanoag-frumbyggjarnir upplifðu samkomuna. Málverk, skólabækur og hátíðarsögur síðari tíma hafa fyllt í eyðurnar og skapað mynd sem er mun ítarlegri og öruggari en ritaðar heimildir leyfa.

Veislan var heldur ekki formlegt upphaf árlegrar þakkargjörðarhátíðar. Þátttakendur gátu ekki vitað að samkoman yrði öldum síðar gerð að táknmynd bandarískrar þjóðarsögu. Að kalla hana upphaf hátíðarinnar er því einföldun og nákvæmara er að segja að síðari kynslóðir hafi gert hana að upphafi með þessari upprunasögu.

Fulltrúi ensku landnemanna og Ousamequin, höfðingi Wampanoag-frumbyggja sem tóku þátt í samkomunni 1621 sem kölluð hefur verið „fyrsta þakkargjörðin“.

Samstarf við ótryggar aðstæður

Samskipti landnemanna og Wampanoag-frumbyggjanna voru ekki eingöngu byggð á velvild. Þar komu einnig til pólitískir hagsmunir, varfærni og þörf fyrir bandamenn. Wampanoag-fólkið hafði búið á svæðinu í að minnsta kosti 12.000 ár áður en evrópskir landnemar mættu þangað óboðnir.

Áður en Mayflower kom með landnemana sem settust að í Plymouth höfðu skæðir faraldrar þegar lagt samfélög frumbyggjanna í rúst. Talið er að á árunum 1616–1619 hafi allt að níu af hverjum tíu íbúum látist í þeim samfélögum við strönd Nýja-Englands sem verst urðu úti. Ekki er fullvíst hvaða sjúkdómur var að verki, en ein tilgáta er að sýkingin hafi verið leptóspírusýking og borist með rottum af evrópskum skipum. Ensku landnemarnir sem sigldu með Mayflower komu því ekki að ósnortnu landi heldur svæði þar sem áður höfðu staðið fjölmenn samfélög sem orðið höfðu fyrir gríðarlegum hörmungum.

Samkoman í Plymouth árið 1621 – „Fyrsta þakkargjörðin“ eins og hún er stundum kölluð.

Ousamequin höfðingi gerði bandalag við Englendingana við þessar erfiðu aðstæður. Sameiginlega máltíðin 1621 verður skiljanlegri þegar hún er sett í samhengi við slíka samningagerð. Þar mættust samfélög sem reyndu að tryggja stöðu sína í breyttum heimi. Frásögn af einfaldri og átakalausri vináttu nær því aðeins utan um lítinn hluta sögunnar.

Þjóðarmorð og þrældómur á ábyrgð enskra landnema

Þegar ensku byggðunum fjölgaði jókst ásókn í land og auðlindir frumbyggja. Átökin sem fylgdu í kjölfarið voru ekki aðeins deilur um mörk eða vegna misskilnings milli menningarheima. Þau fólust einnig í hernaði, eyðingu samfélaga og því að fólk var svipt frelsi sínu.

Pequot-stríðið á fjórða áratug sautjándu aldar er skýrt dæmi. Í árás enskra hermanna og bandamanna þeirra úr hópi Mohegan- og Narragansett-frumbyggja á þorp nærri Mystic River árið 1637 voru hundruð Pequot-manna drepin, þar á meðal konur, börn og aldraðir. Þorpið var brennt og eftirlifendur síðan eltir uppi. Með Hartford-samningnum árið 1638 var reynt að leysa Pequot-þjóðina upp: eftirlifendum var skipt milli annarra þjóðaflokka og þeim bannað að kalla sig Pequot eða snúa aftur til heimkynna sinna. Þjóðin lifði þó þessar hörmungar af.

Pequot fólkið sem lifði af var flutt í þrælahald til eyja á Karíbahafi.

Þakkargjörðardagar voru síðan haldnir í nýlendunum Massachusetts og Connecticut vegna þess sem nýlendubúarnir töldu sigur. Þarna varð ofbeldi gegn frumbyggjum tilefni trúarlegrar þakkargjörðar.

Herforinginn John Mason rakti sigurinn til athafna Guðs. Í frásögn hans segir, í íslenskri þýðingu: „Þannig þóknaðist Drottni að slá óvini okkar í afturendann og gefa okkur land þeirra til erfða.“ Orðin sýna hversu grímulaus trúarleg réttlæting landnemanna í ásókn sinni í land gat verið.

Sumir fanganna voru fluttir í þrældóm til eyja á Karíbahafi. Aðrir voru hnepptir í þrældóm hjá enskum landnemum eða settir undir yfirráð frumbyggjaþjóða sem höfðu barist með Englendingunum. Í nýlendunum neyddust frumbyggjarnir til vinnu á heimilum, bújörðum og við ýmiss konar atvinnurekstur. Ofbeldinu lauk því ekki þegar bardögum lauk.

Það væri þó rangt af mér að fullyrða að árlega þakkargjörðardeginum í núverandi mynd hafi upphaflega verið ætlað að fagna fjöldamorðum. Uppskeruveislan 1621, sem síðar var kölluð „fyrsta þakkargjörðin“, og sérstakir þakkargjörðardagar vegna hernaðarsigra eiga lítið skylt við þakkargjörðarhátíðir okkar tíma. Ábyrg umfjöllun þarf þó að sýna tengsl þeirra án þess að gera þá að einni og sömu hátíð.

Herforinginn John Mason

Þakkargjörðin festist í sessi og fer á almanakið

Framan af var efnt til þakkargjörðardaga í nýlendunum við sérstök tilefni og þeir höfðu trúarlegt hlutverk. Þá skyldi þakka Guði fyrir það sem menn töldu velgjörðir hans, hvort sem það var góð uppskera, björgun úr hættu eða sigur í hernaði. Slíkir dagar gátu verið haldnir á mismunandi árstíma og voru ekki bundnir við eitt skipti á ári. Smám saman festist þó í sessi árleg hausthátíð í Nýja-Englandi, þar sem bænahald og þakkir fyrir uppskeru fóru saman við veisluhöld og fjölskyldusamveru.

Á nítjándu öld hófst barátta fyrir því að sameina þessar hefðir í árlegri þakkargjörðarhátíð sem haldin yrði á sama degi um öll Bandaríkin. Rithöfundurinn og ritstjórinn Sarah Josepha Hale beitti sér fyrir því frá árinu 1846. Hún taldi að sameiginleg hátíð gæti styrkt fjölskyldulíf og þjóðlega samstöðu. Baráttan bar árangur árið 1863 þegar Abraham Lincoln boðaði, í miðri borgarastyrjöldinni, að þakkargjörðardagur skyldi haldinn síðasta fimmtudag í nóvember ár hvert.

Pequot-stríðið á fjórða áratug sautjándu aldar. Átökin sem fylgdu því að ensku byggðunum fjölgaði og ásókn jókst í land og auðlindir frumbyggja fólust m.a. í hernaði, eyðingu samfélaga og því að fólk var svipt frelsi sínu.

Hátíðinni var ætlað að skapa sameiginlega stund þakklætis í sundruðu landi. Þannig tengdist hún uppbyggingu þjóðarsjálfsmyndar: hugmyndinni um að íbúar víðáttumikils ríkis gætu deilt hefðum og tilfinningu fyrir sameiginlegri sögu.

Sögur þjóða eiga það til að byggjast á vali. Sumt er dregið fram, annað fær minna rými eða því sleppt. Veislan í Plymouth hentaði vel sem tákn um samvinnu og nýtt upphaf. Þrældómur frumbyggja og þakkargjörðardagar vegna hernaðarsigra féllu verr að þeirri mynd.

Hátíðin aðlagar sig að nútímanum

Dagsetning hátíðarinnar sýnir einnig hvernig hún hefur breyst með samfélaginu. Árið 1939 færði Franklin D. Roosevelt hana fram um viku til að lengja verslunartímann fyrir jól. Ákvörðunin olli sundrungu, þar sem ríkin fylgdu ekki öll sömu dagsetningu. Með lögum árið 1941 var fjórði fimmtudagur nóvember ákveðinn sem hátíðardagur.

Smám saman urðu skrúðgöngur, íþróttakappleikir og verslun stærri hluti hátíðarinnar. Þessi þróun minnir á að hefðir eru lifandi. Það sem ein kynslóð upplifir sem sjálfsagðan og ævafornan sið getur hafa tekið á sig núverandi mynd tiltölulega nýlega. Þakkargjörðarhátíðin hefur bæði varðveitt eldri venjur og lagað sig að fjölmiðlum, markaði og breyttum fjölskylduháttum.

Rithöfundurinn og ritstjórinn Sarah Josepha Hale.

Hvernig kalkúnninn fékk aðalhlutverkið

Fyllti kalkúnninn er líklega þekktasta tákn þakkargjörðarhátíðarinnar. Hann hafði öðlast sess á þakkargjörðarborðinu áður en hátíðin varð sameiginlegur árlegur þjóðhátíðardagur. Þegar árið 1827 lýsti Sarah Josepha Hale veislu í skáldsögunni Northwood þar sem steiktur kalkúnn með fyllingu var í öndvegi. Um miðja nítjándu öld hafði hann fest sig í sessi sem einkennandi réttur hátíðarinnar, ásamt trönuberjum og graskersböku. Tengsl kalkúnsins við daginn mótuðust því smám saman, en byggjast ekki á öruggri vitneskju um hvað var borið fram árið 1621. Í frásögn Edwards Winslow segir að fjórir landnemar hafi verið sendir til fuglaveiða og að Wampanoag-frumbyggjar hafi veitt fimm hirti og komið með þá til veislunnar. Ekki er tilgreint hvaða fugla landnemarnir veiddu.

Kalkúnninn er upprunninn í Ameríku, líkt og mörg önnur hráefni hátíðarmáltíðarinnar. Maís, grasker, kartöflur og trönuber bera með sér sögu ræktunar og nýtingar frumbyggja á afurðum landsins. Veisluborðið minnir þannig á framlag þeirra, jafnvel þegar þess er ekki sérstaklega getið.

Tímaritið Godeys Ladys Book frá júní 1867.

Á átjándu og nítjándu öld tók máltíðin á sig kunnuglegri mynd. Í matreiðslubókinni American Cookery eftir Ameliu Simmons frá 1796 má finna uppskriftir að kalkún með brauðfyllingu, kartöflumús og graskersböku. Auk brauðs voru í fyllingunni fita, egg og kryddjurtir, stundum að viðbættu víni. Fyllingin gat drýgt máltíðina og nýtt hráefni sem til var á heimilinu, en ekki er hægt að fullyrða að sparnaður hafi verið upphaflegt markmið hennar eins og halda mætti.

Eins og fram hefur komið var það síðan Sarah Josepha Hale sem átti ríkan þátt í að festa þessa máltíð í sessi með skrifum sínum og uppskriftum í tímaritinu Godey’s Lady’s Book. Þar hjálpaði hún til við að útbreiða hugmyndina um sameiginlegt hátíðarborð. Kalkúnn, trönuber og graskersbaka voru því orðin einkennandi samsetning á þakkargjörðarborðinu á fimmta áratug nítjándu aldar.

Þakkargjörðarborðið varð þannig hluti af þeirri sameiginlegu menningu sem hátíðinni var ætlað að styrkja. Fólk þurfti ekki aðeins að vita hvenær ætti að halda daginn hátíðlegan, heldur líka hvernig. Maturinn gaf hátíðinni bragð, lykt og kunnuglega umgjörð sem hægt var að flytja milli kynslóða.

John F. Kennedy náðar kalkún 19. nóvember 1963, aðeins þremur dögum áður en hann var myrtur.

Forseti náðar kalkún

Kalkúnninn hefur fengið sérstakt hlutverk í uppákomu sem haldin er í Hvíta húsinu ár hvert. Fyrir þakkargjörðardaginn þyrmir forseti Bandaríkjanna kalkún með táknrænni „náðun“, svo fuglinn sleppi við að enda á veisluborðinu. Einstakir forsetar höfðu áður þyrmt kalkúnum, meðal annars John F. Kennedy þann 19. nóvember árið 1963 þremur dögum áður en hann var skotinn. Það var síðan árið 1989 í valdatíð George H. W. Bush að athöfnin varð að árlegri hefð.

Þessi tiltölulega ungi siður hefur styrkt stöðu kalkúnsins sem tákns hátíðarinnar. Athöfnin tengist kynningarstarfi kalkúnaframleiðenda, sem afhenda forsetanum fuglana. Það er því ákveðin kaldhæðni í henni: kalkúninum er þyrmt um leið og hann er kynntur sem aðalréttur hátíðarinnar. Boðskapurinn er fremur hátíðleg gamansemi og táknræn miskunn en að verið sé að taka afstöðu gegn kjötáti.

Samvera fyrir suma, sorgardagur fyrir aðra

Í dag þarf þakkargjörðarhátíðin ekki að hafa trúarlega merkingu fyrir þá sem halda hana. Hún getur verið tækifæri til að hitta ættingja, bjóða vinum til borðs eða staldra við í annríki hversdagsins. Fjölskyldur skapa sínar eigin hefðir og móta hátíðina út frá eigin reynslu.

Frumbyggjar hafa ólík viðhorf til dagsins. Sumir halda hann með fjölskyldum sínum. Aðrir mótmæla honum eða leggja áherslu á minningu forfeðra og afleiðingar landtökunnar. Frá árinu 1970 hafa frumbyggjar og stuðningsfólk þeirra safnast saman í Plymouth á þakkargjörðardaginn til að halda þjóðarsorgardag. Þar er minnst landmissis, eyðingar samfélaga og kúgunar, en jafnframt lögð áhersla á áframhaldandi tilveru og styrk frumbyggjaþjóða.

Það er eðlilegt að sjónarmið allra fái að eiga heima í sögu hátíðarinnar. Frumbyggjar eru lifandi samfélög sem hafa rétt til að segja frá reynslu sinni og móta hvernig fortíðarinnar er minnst.

Þakkargjörðir hurfu ekki í Evrópu þótt þær hafi kannski þróast í aðrar áttir en í Vesturheimi. Þótt hátíðarhöldin hafi tekið breytingum er tilefnið kunnuglegt: að koma saman til veislu og samveru og fagna afrakstri vinnunnar, nú eða þakka fyrir gjafir Guðs. Þetta eru hefðir sem okkur ber skylda til að varðveita.

Þakklæti og söguleg ábyrgð geta vel farið saman. Ábyrgðin krefst þess að við nefnum þrældóminn, ofbeldið og gerendurna jafn skýrt og við lýsum veislunni. Sameiginleg máltíð getur haft mikið gildi þótt upprunasagan sé endurskoðuð. Þá verður umfjöllunin um þakkargjörðarhátíðina heiðarlegri og rými skapast fyrir margþættari skilning á þessum degi.

Heimildir

Church of England. (e.d.). Special occasion. https://www.churchofengland.org/prayer-and-worship/worship-texts-and-resources/common-worship/common-material/collects-and-post-16

City of Boston. (e.d.). Boston slavery exhibit. https://content.boston.gov/departments/archaeology/boston-slavery-exhibit

Evangelische Kirche in Deutschland. (e.d.). Erntedankfest. https://www.ekd.de/Erntedank-10832.htm

Library of Congress. (e.d.). Thanksgiving. https://www.loc.gov/classroom-materials/thanksgiving/

Marr, J. S., og Cathey, J. T. (2010). New hypothesis for cause of epidemic among Native Americans, New England, 1616–1619. Emerging Infectious Diseases, 16(2), 281–286. https://doi.org/10.3201/eid1602.090276

Mashantucket Pequot Tribal Nation. (e.d.). History. https://www.mptn-nsn.gov/history/

National Archives. (2023, 27. desember). Congress establishes Thanksgiving. https://www.archives.gov/legislative/features/thanksgiving

National Museum of the American Indian. (e.d.). Timeline. Smithsonian Institution. https://americanindian.si.edu/nk360/thanksgiving/timeline.html

National Park Service. (2020, 25. nóvember). Traditional Thanksgiving cooking. https://home.nps.gov/articles/000/traditional-thanksgiving-cooking.htm

National Park Service. (2026, 15. janúar). Sarah Josepha Hale. https://www.nps.gov/people/sarah-josepha-hale.htm

O’Rourke, J. (2024, 22. nóvember). Before you devour your Thanksgiving feast, learn the full story behind the meal and the holiday. BU Today. https://www.bu.edu/articles/2024/history-of-thanksgiving/

Pequot Library. (2018). Living in the New World: Exhibition guide. https://www.pequotlibrary.org/wp-content/uploads/2018/08/Living-in-the-World_Exhibition-Guide_Feb-14.pdf

Pilgrim Hall Museum. (e.d.-a). Evolution of an American holiday. https://www.pilgrimhall.org/thanksgiving-national-day-of-mourning/evolution-of-an-american-holiday/

Pilgrim Hall Museum. (e.d.-b). The “first Thanksgiving”. https://www.pilgrimhall.org/thanksgiving-national-day-of-mourning/the-first-thanksgiving/

Rangárþing ytra. (e.d.). Töðugjöld. https://www.ry.is/is/mannlif/vidburdir-1/arlegir-vidburdir-1/todugjold

Simmons, A. (1796). To stuff & roast a turkey [Uppskrift úr American cookery]. Pilgrim Hall Museum. https://www.pilgrimhall.org/pdf/Stuff_Roast_Turkey_1796.pdf

United American Indians of New England. (e.d.). National Day of Mourning. Sótt 30. október 2026 af https://www.uaine.org/

White House Historical Association. (e.d.). Which president started the tradition of pardoning the Thanksgiving turkey? https://www.whitehousehistory.org/questions/which-president-started-the-tradition-of-pardoning-the-thanksgiving-turkey