Fara í efni
Matur

Jólahlaðborð að hefjast – verð frá 4900 krónum

Að mæta á jólahlaðborð er fastur liður hjá mörgum fyrir jólin. Þessi mynd er frá jólahlaðborði Múlabergs en á laugardag hefst jólahlaðborðsvertíðin hjá þeim sem og hjá Aurora. Mynd: Múlaberg

Jólahlaðborðstímabilið er að ganga í garð á Akureyri og á næstu vikum munu veitingastaðir bæjarins bjóða gestum upp á hefðbundnar jólakræsingar. Verðið er nokkuð mismunandi milli staða og hefur bæði hækkað og lækkað frá síðustu jólum.

Jólahlaðborðin á Múlabergi og Aurora Restaurant hefjast á morgun, laugardag. Báðir staðirnir bjóða upp á jólahlaðborð á föstudögum og laugardögum fram til 12. desember. Á Múlabergi kostar jólahlaðborðið 16.990 krónur á mann (fyrir börn á aldrinum 6–12 ára er verðið 7.490 krónur en frítt er fyrir börn fimm ára og yngri). Þann 10. desember verður Múlaberg einnig með sérstakt hádegisjólahlaðborð og kostar það 6.990 kr. Hjá Aurora Restaurant  er verðið á jólahlaðborðinu 14.500 krónur á mann (fyrir börn á aldrinum 6–12 ára kostar 6.900 kr. en frítt er fyrir börn sex ára og yngri).

Verbúðin 66 í Hrísey verður með jólahlaðborð 28. nóvember og 5. desember. Verðið þar er 13.900 kr. Þá verður Bautinn með jólahlaðborð fyrstu þrjár helgarnar í desember og þar er verðið 10.990 krónur á mann (10 ára og yngri borða frítt). Eigendur Bautans og Rub23 verða einnig með sína árlegu jólahátíð með jólahlaðborði og balli í íþróttahöllinni þann 28. nóvember. Strikið er með sérstakt hádegis jólabrunch hlaðborð sem kostar 7.990 kr. á manninn (Börn 5 ára og yngri borða frítt og börn 6-12 ára greiða 3.990 kr.). Jólabrunchhlaðborðið er í boði alla laugardaga og sunnudaga frá og með 21. nóvember og fram til 27. desember. Eins bætist fimmtudagurinn 31. des við.

Auk áðurnefndra jólaborða eru margir með sérstaka jólamatseðla og eins er hægt að panta jólahlaðborð fyrir hópa á fleiri stöðum.

Múlaberg verður með sérstakt fjölskyldujólahlaðborð í ár eins og fyrri ár.  Dagsetningin er sunnudagurinn 14. desember en þá mæta jólasveinar á svæðið. 

Verðið hækkar á einum stað en lækkar á öðrum

Ódýrasta jólahlaðborðið sem akureyri.net hefur haft fregnir af er á Vitanum, en það kostar 4.900 kr. og er í boði þrjú kvöld: 27. nóvember, 4. desember og 11. desember. Vitinn hefur áður boðið upp á jólahlaðborð en þá alltaf í hádeginu en nú hefur það verið fært yfir á kvöldin. Þá vekur athygli að verð á jólahlaðborði Múlabergs hefur hækkað um 1.000 krónur frá síðasta ári, eða úr 15.990 krónum í 16.990 krónur. Hjá Aurora Restaurant hefur þróunin hins vegar verið í hina áttina. Þar kostaði jólahlaðborðið 15.200 krónur í fyrra en verðið hefur nú lækkað um 700 krónur og er 14.500 krónur í ár.

*Rétt er að taka fram að hér er eingöngu um verðsamanburð að ræða en mat ekki lagt á fjölda rétta, úrval eða gæði jólahlaðborðanna. Akureyri.net tekur ekki ábyrgð á því að listinn sé tæmandi yfir jólahlaðborð í bænum.