Fisk á disk á jólum
MATARÞRÁ-INN

- Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.
JÓLAMATUR
Fiskur er rótgróinn hátíðarmatur í fjölmörgum löndum. Skýringuna er að stórum hluta að finna í trúarlegum hefðum kaþólsku kirkjunnar.
Fyrir rúmum fjörutíu árum kom Jónas Jónasson útvarpsmaður til mín og bað mig um að útbúa fyrir sig veislu. Hann var þá forstöðumaður Ríkisútvarpsins á Akureyri og ég 22 ára nemi í matreiðslu og hafði umsjón með Laxdalshúsi fyrir fyrirtækið Akur, sem rak staðinn á þeim tíma ásamt Erni Inga myndlistamanni. Jónas var að fara að taka á móti útvarpsstjórum allra Norðurlandanna ásamt öðru fyrirfólki og vildi að ég útbyggi fyrir sig veisluhlaðborð.
Hann vissi að ég átti það til að vera frumlegur og færi ótroðnar slóðir í matargerð. Hann vildi eingöngu hafa fisk, sem var nú kannski ekki algengt veisluhráefni á þeim tíma. Hann lagði mikla áherslu á að hlaðborðið yrði frumlegt en gaf mér að öðru leyti frjálsar hendur. Hann hafði þó eina ósk: að á borðinu yrði ýsa í raspi og að hún ætti að vera köld.

Saltfiskur á laugardagsmarkaðnum Almoradí héraði fyrir jólin. Almoradí er í Alicante héraði á Spáni.
Ég verð að viðurkenna að ég hrökk svolítið við og spurði hann hverju þetta sætti. Ýsa í raspi væri nú ekki það frumlegasta sem ég hefði í huga. Hann hélt þó fast við sitt. Eins og ég man þetta þá sagði hann að sér þætti þessi réttur ómissandi. Hann borðaði réttinn alltaf á jólunum.
Ég spurði einskis frekar og auðvitað var köld ýsa í raspi með á hlaðborðinu, þótt hún stingi nú töluvert í stúf við aðra rétti. Síðan hef ég hins vegar oft velt því fyrir mér hvort hann hafi verið að gera at í mér eða hvort þetta hafi í raun verið jólahefð hjá honum.
Það sem þó vakti kannski mesta undrun mína var hvað fengi mann til að borða fisk á jólunum. Ég var þess fullviss að slíkt þekktist varla. Í mínum huga var fiskur einfaldlega ekki jólamatur. Það hafði lengi verið siður í kristinni trú að neyta ekki kjöts á jólaföstunni og ég taldi að fólk hefði því fengið meira en nóg af fiski þegar jólin gengu í garð.
Þegar ég nokkrum árum síðar fór að búa erlendis og kynna mér matarmenningu og siði annarra þjóða átti ég auðvitað eftir að komast að því að ég hafði rangt fyrir mér; fiskur er víða hefðbundinn jólamatur.

Mexíkóskur Bacalso a la vizcanía.
Fiskur á jólaborðum
Þótt kjöt sé fyrir mörgum ómissandi hluti jólahaldsins er fiskur engu að síður rótgróinn hátíðarmatur í fjölmörgum löndum. Skýringuna er að stórum hluta að finna í trúarlegum hefðum kaþólsku kirkjunnar. Um aldir var aðfangadagur jóla dagur föstu. Ekki mátti borða kjöt, en fiskur var leyfður. Þannig varð hann víða sjálfsagður hluti af hátíðinni og í mörgum löndum er fiskur enn á borðum á aðfangadagskvöld en kjöt á jóladag. Þessar reglur voru ekki aðeins gamall siður heldur voru þær enn í kirkjulögum á 20. öld. Það var ekki fyrr en árið 1966 sem kaþólska kirkjan felldi niður almenna skyldu til föstu og kjötbindindis á aðfangadag. Þá voru matarhefðirnar hins vegar orðnar svo rótgrónar að þær lifðu áfram, þótt trúarlega skyldan væri horfin.
Jólafiskurinn á Norðurlöndum
Þótt Norðurlöndin hafi öll tekið upp lúterska trú á 16. öld lifðu ýmsar matarhefðir frá kaþólskum tíma áfram. Ein þeirra var sú venja að borða fisk á jólaföstunni, þegar trúin takmarkaði neyslu kjöts. Áður en siðaskiptin gengu yfir hafði kjötbindindi verið hluti af undirbúningi jólanna og fiskur því víða á borðum á aðfangadag. En þótt Norðurlandaþjóðirnar ættu þessa trúarlegu arfleifð sameiginlega þróuðust matarhefðir þeirra með ólíkum hætti.

Lútfiskur er enn hluti af norskri og sænskri jólamenningu; þurrkaður þorskur sem fyrst er lagður í vatn, síðan í lút og að lokum útvatnaður á ný.
Í Noregi var fiskur lengi hefðbundinn aðfangadagsmatur. Þar þekktist meira að segja sá siður að borða tvær máltíðir á aðfangadagskvöld. Sú fyrri var föstumáltíð, oft grautur eða fiskur, en síðar um kvöldið var borinn fram kjötmatur til að fagna jólunum. Þessi siður hélst sums staðar langt fram á 19. öld. Lútfiskur er þurrkaður þorskur sem fyrst er lagður í vatn, síðan í lút og að lokum útvatnaður á ný. Hann er enn hluti af norskri jólamenningu, þótt hann sé ekki lengur alls staðar á borðum á aðfangadagskvöld. Þess í stað hafa ribbe, sem er purusteik, og pinnekjøtt, saltað og þurrkað kindakjöt, víða tekið við sem aðalréttir jólanna.
Svíar þekktu sömu hefð. Lengi var lútfiskur borðaður á aðfangadagskvöld en jólaskinkan á jóladag. Fiskurinn hefur ekki horfið úr sænskri jólamatargerð, þótt jólaborðið hafi breyst mikið og kjötréttir séu nú fyrirferðarmiklir. Lútfiskurinn er þannig ein af þeim matarhefðum sem hafa varðveist frá kaþólskum tíma, löngu eftir að trúarleg skylda til kjötbindindis hvarf.
Í Danmörku var saltfiskur hefðbundinn matur á aðfangadagskvöld og átti sá siður einnig rætur í kaþólsku jólaföstunni. Það var ekki fyrr en um miðja 19. öld, þegar aðfangadagskvöld varð helsta hátíðarkvöld Dana, að saltfiskurinn vék að mestu fyrir gæs, önd og svínasteik.

Karpa valinn í jólamatinn í Tékklandi. „Íslensk kona sem þarna bjó ásamt tékkneskum kærasta sínum sagði mér að fyrstu jólin hennar í Prag hefðu þau búið inni á foreldrum hans. Nokkrum dögum fyrir jól hefði skyndilega verið kominn lifandi fiskur í baðkarið,“ segir Þráinn í pistlinum.
Á Íslandi virðist hins vegar hafa varðveist nokkuð önnur hefð sem er sérstaklega áhugaverð í ljósi þess að Ísland var lengi hluti af danska ríkinu og dönsk áhrif á íslenska matarmenningu voru mikil, ekki síst á heimilum kaupmanna og embættismanna. Hér var fiskmeti einkum tengt Þorláksmessu, síðasta heila degi jólaföstunnar. Árni Björnsson þjóðháttafræðingur hefur bent á að þá hafi þótt við hæfi að borða fremur rýran mat til að munurinn á föstunni og jólakrásunum yrði sem mestur og nefnir gamla vísu úr Vopnafirði:
Á Þorláksdag í matinn minn
morkinn fékk ég hákarlinn
harðan fiskinn hálfbarinn
og hákarlsgrútarbræðinginn
Á Vestfjörðum varð skata fyrir valinu, en víðast hvar annars staðar var borðaður harðfiskur, hákarl eða annað fiskmeti. Hefðin að borða kæsta skötu var einkum bundin við Vestfirði en breiddist síðar út til annarra landshluta, ekki síst með fólksflutningum til höfuðborgarsvæðisins.

Besugo al horno: Besugo (kólguflekkur) heilsteiktur í ofni er meðal hefðbundinna jólarétta á Spáni.
Það vekur þó athygli að á meðan heimildir frá Noregi, Svíþjóð og Danmörku greina frá fiskmeti á sjálfum aðfangadegi er það einkum Þorláksmessan sem kemur við sögu í íslenskum lýsingum. Það þýðir ekki að Íslendingar hafi aldrei borðað fisk á aðfangadag, heldur að enn vantar skýrari heimildir um slíka hefð. Hvers vegna fiskurinn tengdist sérstaklega 23. desember hér á landi, en aðfangadegi hjá nágrannaþjóðunum, er þó áhugaverð spurning sem ekki er hægt að svara með vissu.
Sameiginlegur uppruni þessara hefða er hins vegar greinilegur. Þótt trúarreglur breyttust og þjóðirnar þróuðu hver sinn jólamat lifði minningin um jólaföstuna áfram á matarborðinu: í Noregi og Svíþjóð í lútfiskinum, í Danmörku í eldri saltfiskhefð og á Íslandi í fiskmetinu á Þorláksmessu.
Í Noregi voru það ekki aðeins lútfiskur og aðrir réttir úr unnum fiski sem tilheyrðu jólunum. Ferskur þorskur og lúða voru einnig mikils metnir aðalréttir á aðfangadagskvöld, einkum í sjávarbyggðum. Norska hafrannsóknastofnunin hefur bent á að lútfiskur hafi áður fyrr jafnvel verið vararéttur þegar ekki tókst að útvega ferskan þorsk fyrir jólin. Sérstaklega mikil virðing var borin fyrir jólalúðunni í Norður-Noregi og sums staðar fylgdi því skömm fyrir sjómanninn að koma heim án hennar. Í Finnlandi þekktust bæði lútfiskur og söltuð tjarnasíld. Sameiginlegt var að fiskurinn hélt stöðu sinni í jólahaldi þjóðanna löngu eftir að trúarlegt kjötbindindi hafði misst gildi sitt.

Halászlé frá Ungverjalandi. Fiskisúpa sem algeng er á jólum þar í landi.
Ég man hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég smakkaði lútfisk í fyrsta skipti. Mér fannst fiskurinn bragðlaus og óspennandi, líkt og alltof mikið útvatnaður saltfiskur. Lútfiskur er jafnan borinn fram með kartöflum, grænum baunum og steiktu beikoni ásamt bráðinni beikonfitu.
Í Portúgal er saltfiskur eitt helsta tákn jólanna. Á aðfangadagskvöld er víða borinn fram bacalhau com todos, saltfiskur með soðnum kartöflum, káli, gulrótum og eggjum, gjarnan með ríkulegum skammti af ólífuolíu. Rétturinn er einfaldur í allri sinni gerð en skipar stóran sess í portúgölsku jólahaldi. Saltfiskurinn er þó ekki eini jólamatur Portúgala því á jóladag er víða kjöt á borðum.
Á Spáni er fiskur einnig rótgróinn hátíðarmatur, þótt hefðirnar séu mjög mismunandi eftir héruðum. Saltfiskur er matreiddur með ýmsum hætti og í Baskalandi er bacalao a la vizcaína einn þekktasti rétturinn. Í Alicante-héraði eru einnig gamlar hefðir fyrir saltfisk á jólum. Í Callosa de Segura er bacalao meneao, réttur úr saltfiski, kartöflum, hvítlauk, ólífuolíu og eggjum, hefðbundinn jólamatur. Í Alcoy er borreta, pottréttur úr saltfiski, kartöflum og spínati, meðal hefðbundinna rétta á aðfangadagskvöld. Ofnbakaður kólguflekkur, besugo, er einnig meðal hefðbundinna jólarétta á Spáni.

„Saltfiskur með öllu“ – Bacalhau com todos. Portúgalskur jólamatur; saltfiskur með soðnum kartöflum, káli, gulrótum og eggjum, gjarnan með ríkulegum skammti af ólífuolíu.
Saltfiskur varð lykilhráefni á Spáni, enda varan auðflutt og geymdist vel. Saltfiskur varð því mikilvægur matur jafnt við ströndina og langt inni í landi. Frá lokum 19. aldar til fyrri hluta 20. aldar var Spánn stærsti kaupandi saltfisks í heiminum.
Spánn var því mjög mikilvægur markaður fyrir saltfisk frá Íslandi, sem var lengi eitt helsta útflutningsland saltfisks til Suður-Evrópu. Þannig tengist íslenskur sjávarútvegur beint spænskri matarhefð. Til gamans má geta þess að eftir að allsherjar áfengisbann var sett á Íslandi árið 1915 var banni á léttvíni aflétt árið 1921, einkum til að halda í mikilvæga saltfisksmarkaði í Suður-Evrópu. Þannig gátu Íslendingar þakkað saltfiski fyrir það að geta aftur staupað sig á rauðvíni og hvítvíni frá 1922. Þeir þurftu þó að bíða til ársins 1935 eftir að sala á sterku áfengi yrði aftur leyfð og síðan í 54 ár til viðbótar, þar til áfengisbanninu var loksins endanlega aflétt með leyfi fyrir bjórsölu árið 1989.
Það sem margir átta sig ekki á er að nafnið bacalao á spænsku nær yfir þorsk almennt, ekki eingöngu hefðbundinn saltfisk. Þorskur er mjög eftirsóttur á Spáni og fæst ferskur, léttsaltaður eða þurrsaltaður og þurrkaður upp á gamla mátann. Þessi fjölbreytni gefur bacalao mikið pláss í spænskri matarhefð.

Baskneskur Bacalao a la vizcaína.
Í Mexíkó hefur spænska saltfiskhefðin öðlast sérstakt líf. Þar er bacalao a la vizcaína einn þekktasti jólarétturinn rétt eins og í Baskahéraði. Mexíkóska útgáfan er þó töluvert frábrugðin. Saltfiskurinn er yfirleitt rifinn niður og eldaður með tómötum, ólífum, kapers og stundum kartöflum og mildum chile. Rétturinn er gjarnan matreiddur í miklu magni og borðaður yfir nokkra daga. Hann er þó aðeins einn af mörgum hefðbundnum jólaréttum Mexíkóa, þar sem kalkúnn, svínakjöt og ýmsir aðrir réttir koma einnig við sögu.
Þegar ég rak veitingastaðina í Mexíkó setti ég saltfisk á matseðilinn á einum þeirra fyrir jólin. Í versluninni þar sem við keyptum inn fyrir staðina voru tvær stæður af saltfiski sem komið hafði verið fyrir á vörubrettum á verslunargólfinu. Önnur stæðan var með norskum saltfiski en hin, sem var mun minni og talsvert ódýrari, með íslenskum saltfiski. Ég hafði það alltaf á tilfinningunni að ég væri sá eini sem keypti þann íslenska.

Tékkland: Fiskikör með lifandi karpa á aðventunni.
Ég fylgdist með stæðunum í hverri viku og sú íslenska minnkaði lítið og kláraðist ekki fyrir jól. Norski fiskurinn seldist hins vegar svo hratt að nýjar stæður dugðu varla vikuna. Mér þótti þetta afskaplega leiðinlegt, en þetta minnti mig á að við Íslendingar teljum okkur ansi oft vera miklu stærri og meiri en við erum. Við erum stolt þjóð og ég fer ekki ofan af því að íslenski fiskurinn hafi verið mun betri, að minnsta kosti ekki verri. En hinn almenni Mexíkói hafði því miður ekki hugmynd um að Ísland væri til, hvað þá hvar það væri.
Við nánari skoðun á umbúðunum kom líka í ljós að fiskinum hafði verið pakkað í Kanada. Hvort það var gert til að komast hjá tollum eða af einhverjum öðrum ástæðum veit ég ekki. Það fór að minnsta kosti mun meira fyrir Kanada á umbúðunum en Íslandi. Það sagði mér sína sögu um að Ísland væri ekki eftirsótt vörumerki á þessum markaði og stæði langt að baki Noregi í þeim efnum. Við verðum þó að vona að eitthvað hafi breyst á þeim rúmlega aldarfjórðungi sem liðinn er síðan.
Í Mið-Evrópu er það hins vegar ekki saltfiskurinn heldur vatnakarpinn sem skipar sérstakan sess á jólaborðinu. Í Tékklandi er karpi í raspi með kartöflusalati einn þekktasti jólarétturinn. Þegar ég bjó í Tékklandi tók ég eftir því að nokkrum vikum fyrir jól mátti víða sjá menn með stór kör á götuhornum í borginni. Í körunum voru lifandi vatnakarpar og fólk mætti með stórar fötur til að bera fiskinn heim. Fiskinum var síðan haldið lifandi fram að jólum þar til kom að matreiðslunni.

Jólamatur í Tékklandi: Steiktur karpi í raspi með kartöflusalati.
Íslensk kona sem þarna bjó ásamt tékkneskum kærasta sínum sagði mér að fyrstu jólin hennar í Prag hefðu þau búið inni á foreldrum hans. Nokkrum dögum fyrir jól hefði skyndilega verið kominn lifandi fiskur í baðkarið. Ég spurði hana hvort ætlast væri til að fólk færi þá í bað með fiskinum. Flestir létu sér nú nægja gúmmíönd. Hún svaraði því til að hún hefði ekki hugmynd um hvernig aðrir heimilismenn hefðu haft það, en hún sjálf hefði ekki komist í bað í marga daga fyrir jól.
Karparækt á sér langa sögu í Tékklandi, en sú hefð að bera fram raspsteiktan karpa með kartöflusalati varð ekki almenn fyrr en á 20. öld. Áður var karpinn matreiddur með ýmsum öðrum hætti, meðal annars soðinn með grænmeti og kryddi.
Svipaðar hefðir er að finna í Póllandi og Slóvakíu. Í Póllandi er aðfangadagsmáltíðin, Wigilia, jafnan kjötlaus og samkvæmt hefðinni eru bornir fram tólf réttir. Þar er karpi algengur, ýmist steiktur eða matreiddur með öðrum hætti. Auk fisksins skipa súpur, sveppir, kál og ýmsir mjölréttir mikilvægan sess á jólaborðinu. Í Slóvakíu er steiktur karpi með kartöflusalati sömuleiðis rótgróinn jólamatur.
Í Ungverjalandi er það fiskisúpan halászlé sem tengist jólunum. Hún er yfirleitt gerð úr ferskvatnsfiski, einkum karpa, og einkennist af ríkulegri notkun paprikudufts sem gefur henni djúprauðan lit og sérstakt bragð. Súpan er ýmist borin fram sem sjálfstæð máltíð eða hluti af stærri hátíðarmáltíð.

Baskneskir sjómenn við Íslandsstrendur.
Flökkusaga án nokkurra heimilda
Í Fljótum var sögð sú saga að bræðurnir á Bakka í Fljótum hefðu átt mestan þátt í því að koma heitinu bacalao í spænskt mál. Þannig var mál með vexti að rétt ofan við bátavör þeirra bræðra var lág ein og þótti þeim bræðrum upplagt að koma sér upp þar aðstöðu til að salta afla. Bæði var lágin stutt frá vörinni og hentug af náttúrunnar hendi. Í róðrum sínum urðu oft á vegi þeirra bræðra skip spænskra veiðimanna sem voru þar í sömu erindagjörðum og þeir bræður. Tókst með þeim ágætis kunningsskapur.
Síðan gerist það eina vertíðina að veiðar Spánverja gengu brösuglega og vildu þeir kaupa fisk af þeim bræðrum. Bræður töldu það hið besta mál – þeir gætu fengið fiskinn í Bakkalágini. Reru bræður nú nokkrar ferðir út í skip spænskra með fiskinn og sögðust vera að koma með úr bakkaláginni. Spánverjarnir töldu víst að fiskurinn héti bakkalág upp á íslensku. Segir sagan síðan að oft hafi Spánverjarnir þurft að leita í Bakkalágina eftir fiski. Þannig festist heitið við fiskinn, bacalao.
Hvort sem þessi saga er sprottin af þjóðlegri kímnigáfu eða löngun til að eigna Íslendingum uppruna spænska orðsins er hún auðvitað ekkert annað en skemmtileg skröksaga.
Heimildir
Gunnlaugsson, H. (2017). Af hverju var bjór bannaður á sínum tíma en annað áfengi leyft? Vísindavefurinn. https://www.visindavefur.is/svar.php?id=73404
Nagelsen, V. (2021, 20. desember). Derfor spiser vi fisk i julen. Havforskningsinstituttet. https://www.hi.no/hi/nyheter/2021/desember/derfor-spiser-vi-fisk-i-julen
Páll VI. (1966, 17. febrúar). Paenitemini. Páfagarður. https://www.vatican.va/content/paul-vi/en/apost_constitutions/documents/hf_p-vi_apc_19660217_paenitemini.html
Skaarup, B., & Boyhus, E.-M. (2024). Julemad. Lex. https://lex.dk/julemad
VisitCzechia. (e.d.). Czech Christmas traditions: Nativity scenes, superstitions and carp. https://www.visitczechia.com/en-us/news/2020/08/n-christmas-traditions
VisitCzechia. (e.d.). Fried carp with potato salad. https://www.visitczechia.com/en-us/things-to-do/places/gastronomic-tourism/recipes/g-fried-carp-with-potato-salad
VisitPortugal. (e.d.). Christmas Eve supper and Midnight Mass. https://www.visitportugal.com/en/content/christmas-eve-supper-and-midnight-mass
VisitPortugal. (e.d.). Tradições de Natal em Portugal. https://www.visitportugal.com/pt-pt/content/tradicoes-de-natal-em-portugal