Fara í efni
Mannlíf

Pétur á þriðjudegi og „góða fólkið“

Nýr þáttur í hlaðvarpsröðinni, Það er alltaf þriðjudagur er kominn út, sá 11. í röðinni.

Í þáttunum veltir Pétur Guðjónsson fyrir sér ýmsum málum, spyr ýmissa spurninga í spjalli við hlustendur. Svörin eru sjaldnast til staðar, það er í höndum hlustenda sjálfra að svara fyrir sig, segir Pétur. Akureyri.net birtir útdrátt og slóð á þættina alla útgáfudaga.

Þessi þáttur er nokkurs konar framhald af þarsíðasta þætti, þar sem fjallað var um að vera eða ekki vera-eitthvað. 

Nú er farið aðeins dýpra í það og talað um góða fólkið, sem samkvæmt Pétri eru mögulega þeir sem telja sig yfir aðra hafna. „Og þá liggur beinast við að skoða hvað snobb er, því það er mjög líklegt að við tölum um snobbað fólk með ýmsum mismunandi meiningum.“

Þetta er umræðan þennan þriðjudaginn. Smellið hér til að hlusta á þáttinn.