Fara í efni
Mannlíf

Hvernig skal greina kjarnann frá hisminu?

Pétur Guðjónsson hefur sent frá sér 19. þáttinn í hlaðsvarpsröðinni, Það er alltaf þriðjudagur. Þættirnir, sem eru fyrst og fremst vangaveltur umsjónarmanns til hlustenda, þar sem spurningum um hversdagslega hluti er velt upp. 

Akureyri.net birtir útdrátt að vanda og slóð á þátt dagsins, sem Pétur kallar Rangur maður. 

Þessa vikuna veltir Pétur fyrir sér hvernig skal greina kjarnann frá hisminu þegar einhver gefur ráð um eitt og annað. Eins og til dæmis heilsuráð; hvaða starf þú átt að taka eða bara hvernig skuli bregðast við einhverjum aðstæðum.

„Að vera rangur maður, eins og segir í laginu, getur komið til þegar viðkomandi hlustar á margar mismunandi ráðleggingar en hefur ekki sjálfstraust til þess að standa mér sínum,“ segir Pétur.

Og mögulega getur samanburður leitt til óhamingju. Þá er nokkrum áhugaverðum spurningum slegið inn í google, eins og til dæmis: Hvernig verð ég 100 ára, og áhugaverð svör sem koma þar í ljós.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.