Fara í efni
Mannlíf

Alltaf þriðjudagur og stundum draugar

20. þáttur hlaðvarpsins Það er alltaf þriðjudagur er kominn út. Hlaðvarpið er í góðu samstarfi við Akureyri.net sem birtir ætíð útdrátt úr þætti vikunnar og slóð á hann á streymisveitunni Spotify.

Í þessari viku birtist fyrri hluti af tveimur þar sem fjallað um drauga, fyrirboða og aðrar víddir. Pétur Guðjónsson skoðar samanburð á draugatrú Íslendinga síðustu 50 ár og fer meðal annars yfir nýlegar rannsóknir í þeim efnum. Einnig er sagt frá einstaklingi sem dreymdi fyrir náttúruhamförum fyrir nærri 30 árum.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn