Fara í efni
Mannlíf

Pétur á þriðjudegi og aðventan langa

Þáttur númer 23 af hlaðvarpi Péturs Guðjónssonar; Það er alltaf þriðjudagur, er kominn út. Eins og vanalega birtir Akureyri.net útdrátt úr þættinum.

Í þessari viku er litið til aðventunar sem senn gengur í garð. Pétur ræðir um neysluhyggju okkar, um kvíðann sem getur dunið yfir þegar jólin nálgast, jólakvíðann. Pétur segir: Það þarf að finna réttu gjafirnar og standa sig í jólaboðum en svo þarf líka að huga að heilsunni og réttu buxnastærðinni. Hún getur verið breytileg ef þú ætlar til dæmis að smakka alla jólabjórana sem koma á markaðinn. Eða fara á öll jólahlaðborðin sem eru í boði á svæðinu.

Svo getur aðventan, þegar margir viðburðir eru í boði, kallað á svokallað fomo (fear of missing out) sem í hinum ágæta sjónvarpsþætti Kappsmáli er þýtt sem útundanótti. 

Er aðventan farin að teygja sig full mikið inn í nóvember með til dæmis jólalögum, öli og matarveislum?

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.