Fara í efni
Íþróttir

Veistu hvaða ungu KA strákar þetta eru?

Ljósmynd: Páll A. Pálsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – XI

Ellefta gamla íþróttamyndin birtist á Akureyri.net í dag lesendum til skemmtunar. Hana tók Páll A. Pálsson ljósmyndari á Akureyri snemma á áttunda áratugnum á gamla moldarvellinum austan við íþróttavöllinn við Hólabraut. Þarna eru ungir knattspyrnumenn í KA á æfingu ásamt þjálfara sínum, Arnari heitnum Einarssyni. Gaman er að nefna að um svipað leyti sat Arnar í aðalstjórn Þórs!

Á myndinni eru nokkrir landsþekktir menn. Ritstjóri Akureyri.net þekkir alla með nafni en gefur þau ekki upp strax – skemmtilegra er að bjóða lesendum upp í dans og leyfa þeim að spreyta sig! Veistu nöfn drengjanna og kanntu jafnvel af þeim skemmtilegar íþróttasögur? Endilega sendu upplýsingar á netfangið skapti@akureyri og nöfnin verða öll birt einhvern næstu daga.