Tryggvi Gíslason – minningar
Útför Tryggva Gíslasonar, fyrrverandi skólameistara Menntaskólans á Akureyri, verður frá Hallgrímskirkju í Reykjavík í dag. Útförin hefst kl. 15.00 og verður streymt hér: www.recmedia.is/streymi
Tryggvi var fæddur 11. júní 1938 og lést 8. júní, þremur dögum fyrir 88 ára afmæli sitt. Foreldrar hans voru Fanny Kristín Ingvarsdóttir og Gísli Kristjánsson. Tryggvi var yngstur sex systkina.
Eiginkona Tryggva, Margrét Eggertsdóttir, lifir mann sinn. Þau eiga sex börn, Arnheiði, Eggert, Fanny Kristínu, Gísla, Tryggva og Svein.
Tryggvi Gíslason – lífshlaupið
Þessi minnast Tryggva í greinum sem birtist á akureyri.net í dag. Smellið á nöfn höfunda til að lesa greinina.
Nanna, Emma og Fanny Eggertsdætur
Á útfarardegi Tryggva Gíslasonar birtir akureyri.net einnig eftirfarandi:
Viðtal Skapta Hallgrímssonar við Tryggva þegar hann lét af starfi skólameistara árið 2003. Viðtalið birtist þá í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Þrír sjónvarpsþættir Helga Jónssonar sem finna má á youtube rás Tinds TV.
Þáttur Helga um Tryggva Gíslason á youtube rás Tinds TV. Tryggvi segir frá bernskublikum sínum.
Tryggvi Gíslason segir frá æskuslóðunum á Akureyri. Þennan þátt Helga Jónssonar er að finna á youtube rás Tinds TV. Aðrir viðmælendur eru Ásdís Karlsdóttir, Bjarni Bjarnason og Viðar Garðarsson sem margir muna eftir sem Vidda í Skíðaþjónustunni.
„Hér er gripið niður í sögu Menntaskólans á Akureyri, enda þótt sagan verði aldrei sögð öll,“ segir Helgi í kynningu á youtube rásinni, Tindur TV. „Burðarviðtöl: Tryggvi Gíslason, meistari árin 1972-2003, og Jón Már Héðinsson, meistari 2003-2022. Auk þess eru stutt viðtöl við eldri stúdenta: Huldu Kristjánsdóttur (1939), Kristmund Bjarnason á Sjávarborg (1940), Halldór Þorsteinsson (1941) og Ingvar Gíslason (1947); öll látin.“
Hér skal bent á, til fróðleiks og skemmtunar, alla sex þætti Helga Jónssonar um MA:
Saga Menntaskólans á Akureyri I - VI
Í október 2024 voru 120 ár liðin síðan hið gamla, glæsilega skólahús Menntaskólans á Akureyri var tekið í notkun og akureyri.net fékk þá góðfúslegt leyfi Tryggva Gíslasonar til að birta kafla úr bók fallegri hans, Lifandi húsið – saga gamla skólahúss Menntaskólans á Akureyri, sem Völuspá gaf út árið 2013 í samvinnu við skólann. Gamli skóli á brekkubrúninni ofan við Barðsnef er eitt af helstu táknum Akureyrar og án efa eitt allra fegursta timburhús landsins