Helgamagrastræti og Tryggvi – Tindur TV
Sjónvarpsþáttur Helga Jónssonar, MA-stúdents 1982 og fyrrverandi nemanda Tryggva Gíslasonar. Helgi veitti akureyri.net góðfúslegt leyfi til að birta þáttinn á útfarardegi Tryggva Gíslasonar.
Helgi segir í kynningu á þættinum:
Tryggvi Gíslason, skólameistari MA í 30 ár, fæddist í Norðfirði en fluttist með fjölskyldu sinni til Akureyrar 7 ára. Gatan hans var Helgamagrastræti, og það var hann sem átti frumkvæðið að þessari heimildamynd - hann bað mig um að vera með. Ég tók það sem hól, því menntaskólaárin mín voru ekki alveg slétt og felld, síður en svo. En Tryggvi sýndi og sannaði manngæsku sína með því að heyra í mér, syndaselnum. Viðmælendur eru Ásdís Karlsdóttir, Bjarni Bjarnason og Viðar Garðarsson sem margir muna eftir sem Vidda í Skíðaþjónustunni. Ég sakna hans sárlega. Drónaskot eru eftir gamlan ungnema frá Ólafsfirði, Braga Óskarsson, og sendi ég honum hjartans þakkir.
Smellið hér til að horfa á þáttinn: