Fara í efni
Minningargreinar

Tryggvi Gíslason

Ég er stúdent úr MA 1978. Þá var Tryggvi nýtekinn við embætti og við nemendur heyrðum sögur af agaleysi fyrri ára og skynjuðum stýrandi styrka hönd hans til úrbóta. Ég hafði mikil samskipti við Tryggva, bæði þegar vel gekk og eins þegar eitthvað bjátaði á. Ég upplifði hann ekki sem yfirvald þó hann gæti verið strangur, heldur sem áhrifavald í gömlu góðu merkingu þess orðs. Góða fyrirmynd. Og alltaf sanngjarnan. Metnaður hans fyrir skólann og þar með okkur nemendur var mikill og nærvera hans sterk. Ef ég reyni að lýsa blendinni tilfinningunni þá leið manni af munnsvip hans eins og maður væri undir ströngu eftirliti eða hefði jafnvel gert eitthvað af sér, en undir vökulu mildu augnaráðinu voru væntingar um velgengi og framgang. Hann hafði trú á okkur og maður fór af fundum hans með lausnir og nýjar leiðir í stað hindrana.
 
Ég man hve mér fannst það magnað að hann þekkti alla nemendur skólans með nafni. Og mikið þótti mér vænt um og virðingarvert í okkar garð, að hann handskrifaði sjálfur svo fagurlega einkunnirnar á prófskírteinin okkar.
 
Sem nemandi í skólanum undir hans stjórn upplifði ég öryggi, ánægju, hvatningu, eflingu og trú á framtíðina.
 
Nú eldri og reyndari skil ég betur mikilvægi þess umhverfis og menningar sem Tryggvi skóp í MA með úrvalsliði kennara og starfsfólks. „Sýnum öll í vilja og verki vöxt og trú og bræðralag“.
 
Þeir sem á eftir hafa komið, stjórnendur sem kennarar hafa haldið uppi sögu, menningu og metnaði skólans af sama ákafa og kjarki. „Sýnum það að afl og andi eigi skóla Norðanlands.“
 
Ég þakka Tryggva og MA fyrir samferðina, minningarnar, fræðsluna, innrætinguna, agann og leikinn.
 
Fjölskyldunni sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
 
Guð blessi minningu Tryggva Gíslasonar.
 
Ólafur Þór Ævarsson

Tryggvi Gíslason

Bragi Guðmundsson skrifar
22. júní 2026 | kl. 12:30

Tryggvi Gíslason

Nanna, Emma og Fanny Eggertsdætur skrifa
22. júní 2026 | kl. 08:00

Tryggvi Gíslason – lífshlaupið

Gísli Tryggvason skrifar
22. júní 2026 | kl. 07:30

Jónas Sigurjónsson

Pétur Þór Jónasson skrifar
20. júní 2026 | kl. 16:00

Jónas Sigurjónsson

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 12:15

Jónas Sigurjónsson

Systkini Hallfríðar Einarsdóttur og makar skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00