Fara í efni
Jóhann Árelíuz

Kosningadagur

EYRARPÚKINN - 43

Mjótt var á munum Sjálfstæðis og Framsóknar í bæjarstjórnarkosningum bernskunnar. Réðu flokkar þessir lögum og lofum í Akureyrarpólitíkinni undir stjórn Jóns Sólness bankastjóra og Jakobs Frímannssonar kaupfélagsstjóra enda stuttir og sverir þeir höfðingjar.

Rokkaði fylgið til og frá milli flokkanna og skipti sköpum um meirihluta því þeir unnu ekki saman á Viðreisnarárum. Allt er betra en íhaldið hvein í karli föður. Sjálfstæði og Framsókn yfirleitt með fjóra fulltrúa hvor flokkur og nægðu þá kratar íhaldinu til slímsetunnar.

Einhverju sinni skutust kommar í tvo fulltrúa og endurnýjuðu Hræðslubandalagið sem brugðist hafði vinstri mönnum fyrr á árum. Og einhverju sinni fékk Framsókn fimm menn kjörna enda láglaunalýðurinn á verksmiðjunum langþreyttur á loforðum Viðreisnar.

Dýrt hvert atkvæðið og hart barist um einstaklinginn í kosningaslagnum og voru fjörgamlar frænkur þrifnar af koppum og drifnar á kjörstað ásamt ömmum, öfum og öðru aflóga fólki sem komið var út úr heiminum. Bara að krossa við D eða B og allt í himnalagi!

Einn kosningadagsmorgun með sól í heiði varð mér litið út um herbergisgluggann og sá hver bronsgræn Chevrolet Impala-bifreið, A 41, renndi makindalega í hlað Lönguvitleysunnar. Þar bjó Styrmir Hólmdal með grannri konu og sjö pottormum í einu og hálfu herbergi.

Snaraðist snöggklipptur bankamaður úr bílnum græna, knúði dyra og hvarf í hreysið. Eftir drykklanga stund birtust þeir bræður Bjartur og Styrmir óstyrkir á lörfunum og voru studdir útí bíl.

Hafði ég orð á við karl föður sem fussaði og kvað íhaldinu ekkert heilagt en fékk þó ekki varist brosi. Kunnu á kerfið Hólmdalarnir!

Eftir hangikjöt og heitan búðing og kominn í bolta sé ég drossíuna grænu renna aftur í hlað Lönguvitleysunnar og upp risu úr aftursæti Bjartur og Styrmir og skyggndu sól á jakkafötum frá JMJ, í hvítum skyrtum með bindi, briljantín í sverði og bokkur í belti og skinu eins og tungl um hábjartan kosningadaginn.

Föðmuðu elsku vininn bílstjórann og hurfu í höllina kampakátir. Höfðu lagt lóð sín á vogarskálar velferðarinnar og gleymdu í grænni flösku sorphirðunni handan hvíldardagsins.

Voru fastráðnir í öskunni Hólmdalarnir.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

  • Kosningadagur er kafli úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003.

Nafnalágin

Jóhann Árelíuz skrifar
15. mars 2026 | kl. 06:00

Frostaveturinn 1918

Jóhann Árelíuz skrifar
08. mars 2026 | kl. 15:00

Ferðin austur

Jóhann Árelíuz skrifar
22. febrúar 2026 | kl. 06:00

Brodd-Helga þáttur

Jóhann Árelíuz skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 06:00

Fjalla-Eyvindur og Halla

Jóhann Árelíuz skrifar
08. febrúar 2026 | kl. 06:00

Heiðaharmur

Jóhann Árelíuz skrifar
01. febrúar 2026 | kl. 06:00