Fara í efni
Jóhann Árelíuz

Beitarkóngur á Borgum

EYRARPÚKINN - 96
 
Fjármennska var Einari Jónssyni ær og kýr enda áhuginn óseðjandi um vöxt sauðkindarinnar og viðgang.
 
Eitt ár vann pabbi fyrir bleikum hesti hjá Benedikti á Egilsstöðum og reið hann fáknum norður í Sleitustaði í Hólahreppi og tók alla tíð mið af búskaparháttum Sigurðar á Sleitustöðum en landið í Skagafirði liggur betur til beitar en Borgir í Vopnafirði þar sem allt fór á kaf í austanáttinni.
 
Á Borgum byrjaði pabbi með síldarmjölsgjöf fyrstur vopnfirskra bænda og gafst vel, enda mældi hann mjölið milli þumals og vísifingurs og vissi upp á gramm hvað hver kind þoldi sér til viðurværis auk töðu og beitar og færði á blað, því pabbi kunni persónu kinda sinna þó hann kynni ekki nöfn þeirra allra eins og elsti sonurinn og ekkert fór í súginn hjá honum.
 
Einar áformaði að virkjun fossa í Sunnudalsá þegar vistin uppi á Borgum misbauð heilsu hans enda oft nær orðinn úti þegar hann hleypti fénu út í kolsvarta myrkri og stóð yfir því inni í giljum í öllum veðrum.
 
Þá var timbrað þakið á Borgum snjóþungt en pabbi hafði ekki bolmagn til moksturs og hefði karl faðir átt skilið jörð á borð við Syðri-Vik eða Eyvindarstaði til að yrkja á fjárvísindi sín.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Beitarkóngur á Borgum er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Jól á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
06. september 2026 | kl. 06:00

Fjandafæla, sokkapör og rósakrans

Jóhann Árelíuz skrifar
23. ágúst 2026 | kl. 06:00

Byggt á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
09. ágúst 2026 | kl. 06:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00

Frá Búastöðum í Borgir

Jóhann Árelíuz skrifar
31. maí 2026 | kl. 06:00