Fara í efni
Jóhann Árelíuz

Frostaveturinn 1918

EYRARPÚKINN - 80
 
Fyrsta minning Steindórs Jónssonar er þegar faðir hans kemur frosnum skildi úr bala fyrir baðstofugluggann því þá hélst skíma í bænum.
 
Í baðstofuglugganum voru fjórar rúður og lærði Steini að reikna með því að telja þær.
 
Systkinin á Hraunfelli voru bláleit og kinnfiskasogin þrátt fyrir föðurland og vaðmálsklæði og dreymdi feita bringukolla í baðstofunni myrkurkaldri.
 
Þetta var Frostaveturinn mikli.
 
Steini var tveggja ára gamall.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum síðustu misseri hefur akureyri.net birt kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Frostaveturinn 1918 er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Jól á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
06. september 2026 | kl. 06:00

Fjandafæla, sokkapör og rósakrans

Jóhann Árelíuz skrifar
23. ágúst 2026 | kl. 06:00

Byggt á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
09. ágúst 2026 | kl. 06:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00