Fara í efni
Jóhann Árelíuz

Búskapur á Hraunfelli

EYRARPÚKINN - 83
 
Þegar ég hlustaði á pabba segja frá barndómnum uppi á Hraunfelli sá ég bræðurnar fyrir mér snuðrandi um hlaðið eins og yrðlinga í leit að hverju því hæti sem að gagni mætti koma í búskapnum.
 
Mér birtist lágreistur torfbær með örlitlum ljóra og það fraus á koppnum þó blessuð kýrin jórtraði undir baðstofunni.
 
En það var nóg að gera og margar hendur á lofti þegar skíturinn var borinn í fanginu út úr fjárhúsunum og síðar klofinn og reistur upp til þurrks.
 
Svo rigndi í skítinn og þá þurfti að bera hann inn í húsin til að geta borið hann út aftur, reist upp og þurrkað.
 
Stákarnir reyttu gras með höndunum á Hraunfelli, þar var aldrei ullarlagð að sjá, reyndu við fiska og fugla og biðu betri tíma með sultardropa í nefi.
 
Jónas yrkir
 
Bóndi er bústólpi
bú er landstólpi
því skal hann virður vel.
 
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Búskapur á Hraunfelli er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Frá Búastöðum í Borgir

Jóhann Árelíuz skrifar
31. maí 2026 | kl. 06:00

Viðvíkurförin

Jóhann Árelíuz skrifar
24. maí 2026 | kl. 13:00

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Dottið í Hofsárhyl

Jóhann Árelíuz skrifar
03. maí 2026 | kl. 06:00

Súrmatur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
26. apríl 2026 | kl. 11:30

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00