Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Körfubolti: Þór tekur á móti Haukum í kvöld

Jalen Green (6) og Pétur Cariglia (33) í bikarleik gegn Sindra fyrr í haust. Green hefur verið atkvæðamestur Þórsara í leikjum liðsins í haust. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Karlalið Þórs í körfuknattleik tekur á móti liði Hauka úr Hafnarfirði í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld kl. 19:15 í fimmtu umferð 1. deildarinnar. 

Þórsliðið vann sinn fyrsta sigur á leiktíðinni í fjórðu umferð 1. deildarinnar um síðastliðna helgi. Þórsarar höfðu tapað fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni, ásamt bikarleik, en unnu Fjölni í jöfnum spennuleik síðastliðinn föstudag. Þór og Fjölnir eru jöfn í 9. og 10. sætinu, bæði með einn sigur í fyrstu fjórum umferðunum. 

Leikur dagsins verður væntanlega áskorun fyrir Þórsliðið þar sem Haukar eru meðal sterkustu liða deildarinnar, en Hafnarfjarðarliðið er í 2. sæti deildarinnar með fullt hús, fjóra sigra eins og ÍA sem er á toppi deildarinnar.

  • Körfubolti
    1. deild karla, 5. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Haukar

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45