Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Handbolti: Þórsarar taka á móti FH í dag

Danska skyttan Bertram Simonsen hefur skorað mest Þórsara það sem af er tímabilinu, 45 mörk í átta leikjum. Mynd: Ármann Hinrik.

Lið frá vinabæjunum Akureyri og Hafnarfirði etja kappi tvo daga í röð í handbolta þessa helgina. KA tókst ekki að stöðva sigurgöngu Hauka í gær, en í dag tekur Þór á móti hinu Hafnarfjarðarliðinu, FH, í níundu umferð Olísdeildar karla. Bæði liðin töpuðu í síðustu umferð.

Þór er í 8. sæti deildarinnar með sex stig að loknum átta leikjum, en FH í fimmta sætinu með 11 stig. FH mátti játa sig sigrað í síðustu umferð, en liðið tók þá á móti KA í Kaplakrikanum, lokatölur 33-39. Í sömu umferð sóttu Þórsarar Mosfellinga í Aftureldingu heim, en fóru tómhentir þaðan eftir 38-34 tap. 

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 9. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 15
    Þór - FH

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45