Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Knattspyrna kvenna verði hornsteinn hjá KA

Samstarfi Þórs og KA um kvennalið í knattspyrnu er lokið eins og akureyri.net greindi frá eftir hádegi í dag. Samstarfssamningur félaganna rann út að lokinni nýliðinni leiktíð og KA ákvað að endurnýja hann ekki.

KA hefur nú sent frá sér eftirfarandi tilkynningu um málið:

KA og Þór hafa um árabil staðið saman að rekstri kvennaknattspyrnu á Akureyri í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna. Samstarfssamningur félaganna rann sitt skeið á enda 15. október sl. og hefur KA tekið þá ákvörðun að endurnýja hann ekki.

Að baki ákvörðuninni liggur sú framtíðarsýn KA að kvennaknattspyrna verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur sem hefja æfingar hjá KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk.

Frá og með næsta tímabili mun KA tefla fram eigin liðum í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna. Félagið lítur björtum augum til þessa nýja kafla og hlakkar til að byggja upp öflugt, faglegt og skemmtilegt kvennastarf sem KA-fólk getur verið stolt af.

KA þakkar Þór fyrir gott og gifturíkt samstarf í gegnum tíðina og óskar félaginu alls hins besta.

Fyrir hönd kvennaráðs knattspyrnudeildar KA,
Ásgeir Örn Blöndal

Þór/KA hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari, 2012 og 2017. Liðið varð í áttunda sæti Bestu deildarinnar í sumar, hélt sæti í deildinni með sigri á Víkingi í Reykjavík í lokaumferðinni en Víkingur og Valur féll úr deild þeirra bestu.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45