Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Handbolti: Afturelding stóðst áhlaup Þórs

Þórður Tandri Ágústsson var markahæstur í liði Þórs með 8 mörk. Mynd: Ármann Hinrik.

Þórsarar töpuðu 38:34 gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ í 8. umferð efstu deildar karla í handknattleik, Olísdeildinni, í kvöld. Afturelding náði góðri forystu í fyrri hálfleik, var sex mörkum yfir í leikhléi, og stóðst áhlaup Þórs í seinni hálfleik.

Leikurinn var í jafnvægi framan af en rétt fyrir miðjan fyrri hálfleik kom góður kafli hjá Aftureldingu og munurinn varð sex mörk, 13:7. Sá munur hélst það sem eftir var hálfleiksins og staðan var 23:17 Aftureldingu í vil í leikhléi.

Þórsarar byrjuðu seinni hálfleikinn vel og eftir um 8 mínútur var munurinn kominn niður í tvö mörk, 24:22. Þá bætti Afturelding í og jók muninn í fimm mörk áður en Þórsarar gerðu annað áhlaup og náðu muninum aftur niður í tvö mörk. Þrátt fyrir mikla baráttu komust Þórsarar ekki nær. Í stöðunni 34:32, og enn 6 mínútur til leiksloka, klúðruðu Þórsarar sókn og Afturelding gerði næstu þrjú mörk. Þar með voru úrslitin ráðin og lokatölur urðu síðan 38:34.

Þórsarar eru sem stendur í 6.-7. sæti deildarinnar með 6 stig eftir 8 leiki en samt ekki nema tveimur stigum frá fallsæti, þannig að hvert stig er dýrmætt. Næsti deildarleikur Þórs er heimaleikur gegn FH næstkomandi sunnudag.

Mörk Þórs: Þórður Tandri Ágústsson 8, Hákon Ingi Halldórsson 6 (2 víti),  Bertram Simonsen 5, Hafþór Már Vignisson 4, William Skovager 4 (1 víti), Brynjar Hólm Grétarsson 2, Oddur Gretarsson 2, Jóhann Geir Sævarsson 2, Mikkel Bak Scheumann Jensen 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 11 (26%), Tristan Ylur Guðjónsson 0.

Mörk Aftureldingar: Oscar Sven Leithoff Lykke 8 (1 víti), Árni Bragi Eyjólfsson 7, Leó Halldórsson 5, Stefán Magni Hjartarson 5, Hans Jörgen Ólafsson 4, Haraldur Björn Hjörleifsson 4, Kristján Ottó Hjálmsson 4, Daníel Bæring Grétarsson 1.

Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 11 (37%), Sigurjón Bragi Atlason 2 (12%).

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45