Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Undrast gríðarlegt fé í íþróttamannvirki

Kristín Helga Schiöth, fulltrúi Samfylkingar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrar, undrast hve gríðarlega miklu fé er varið til uppbyggingar á svæðum stóru íþróttafélaganna í bænum, KA og Þórs. Þetta kemur aðsendri grein hennar sem akureyri.net birtir.

Kristín Helga nefnir vel þekkt dæmi frá Ítalíu til samanburðar: „Í Mílanó á Ítalíu hafa erkifjendurnir AC Milan og Inter Milan deilt heimavelli í áratugi. Tvö sjálfstæð knattspyrnufélög með ríka sögu sem deila keppnisvelli án þess að það dragi úr sérstöðu þeirra eða sjálfsmynd. Ég játa að ég á erfitt með að skilja að slík samnýting geti ekki gengið í 20.000 manna samfélagi á Íslandi.“

Kristín Helga segir að þegar tillaga meirihlutans að  fjárhags- og framkvæmdaáætlun fyrir kjörtímabilið lá fyrir í lok október hafi hún átt erfitt með að skilja samhengi þeirra talna sem hún fékk til yfirlestrar.

Hún skrifar: „Samkvæmt tillögu meirihlutans fer yfir þriðjungur framkvæmdafjár í A-hluta reksturs bæjarins til þessara tveggja íþróttafélaga á kjörtímabilinu. Tæpir fjórir milljarðar króna. Til samanburðar er heildarupphæð framkvæmdafjár til menningarmála 1,3% áætlunarinnar og 0,34% er eyrnamerkt bruna- og almannavörnum.“

Kristín Helga, sem er nýliði í bæjarpólitíkinni, tekur fram að hún sé ekki áhugalaus um íþróttastarf, börn hennar stundi íþróttir af kappi, hún viti „mætavel hversu mikilvægt öflugt íþróttastarf og aðgengi að því er samfélaginu, ekki síst börnum og ungu fólki“ og beri mikla virðingu fyrir hugsjónum þeirra sem standa að íþróttastarfi og öllu því öflugu sjálfboðaliða- og grasrótarstarfi sem fer fram í bænum.

„Ég átta mig á því að það er ekki hægt að gera allt fyrir alla í einu. En þegar við setjum gríðarstór uppbyggingarverkefni tveggja íþróttafélaga í forgang ár eftir ár, kjörtímabil eftir kjörtímabil, ýtum við óhjákvæmilega öðrum verkefnum aftar í röðina – eða hreinlega út af borðinu.“

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45